Einn allra þekktasti íþróttafréttamaður Íslandssögunnar er Hörður Magnússon, alltaf kallaður Höddi Magg, hefur nú söðlað um og hefur verið ráðinn til starfa sem álitsgjafi hjá RÚV:
„If you can’t beat them, join them. Nýtt hlutverk. Mér var boðið að gerast álitsgjafi í bikarmörkum á RÚV í sumar sem ég þáði. Verð einnig að lýsa hjá þeim í bikarnum,“ sagði markaskorarinn mikli, Höddi Magg, einn markahæsti leikmaður í sögu efstu deildar í knattspyrnu á Íslandi.
Höddi segir að þaðsé „mikil tilhlökkun að takast aftur á við íslenska boltann með góðu fólki. Held síðan mínu striki á Viaplay og er að fara til Frakklands og Ísrael á næstunn að lýsa á vettvangi. Góðar stundir.“