Laugardagur 20. apríl, 2024
8.1 C
Reykjavik

Hús Elísabetar læknis eggjað og börnin send burt: „Kæmi varla á óvart ef ég hyrfi eða fyndist dáin“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Elísabet Guðmundsdóttir lýtalæknir hefur fengið lífslátshótanir eftir að hún gerðist andlit baráttunnar gegn Covid-19 sóttvarnaraðgerðum hér á landi. Ekki aðeins lífslátshótanir heldur einnig hótanir um barsmíðar og nauðganir. Í gær var heimili hennar grýtt og hún hefur komið börnum sínum í öruggt skjól.

Elísabet greinir frá þessu í færslu á Facebook þar sem hún birtir jafnframt mynd af grýttu heimili sínu. „Ofbeldið gegn mér tekur engan enda og netníðingar farnir að ráðast á mig a heimili mínu og eg hef sent börnin mín i öryggi. Ég er særð, leið, hrædd og vanmáttug, er beitt ofbeldi og einelti ekki aðeins yfirvalda og lögreglu heldur einnig samlanda minna. Mér hafa borist alvarlegar hótanir um barsmíðar, nauðganir og líflát og hef greint lögreglu frá því í tvígang og beðið um aðstoð/vernd,“ segir Elísabet og heldur áfram:

„Þeir settu mig samt út a götu eina um miðja nótt eftir 3ja tíma yfirheyrslu um miðja nótt eftir að hafa verið handtekin, dregin út út bil mínum, handjárnuð, og beitt hræðilegu ofbeldi lögreglunnar. Ég var látin sitja handjárnuð fyrir aftan bak með poka yfir höfði mér umkringd 5 lögreglumönnum og án lögfræðings eða annarar manneskju.“

Mannlíf sagði frá handtökunni sem Elísabet vísar til. Hún var handtekin á fimmtudag og birti af því myndband en þá var hún á ferð með Trausta Eysteinssyni, múrara og öndunarsérfræðingi. Hann brjálaðist við lögreglumenn yfir handtöku Elísabetar sem honum þótti harkaleg. Hún grét og grét.

Elísabet var stöðvuð af lögreglu þar sem hún var eftirlýst eftir að hafa ekki mætt í skýrslutöku. Hún hefur þetta að segja um handtökuna og síðustu vikur:

„Það er óraunverulegt það sem komið hefur fyrir mig undanfarnar vikur. Glæpur minn sem þið dæmið og kastið steinum í, er að hafa rætt opinberlega hvað þið þjóð mín getið gert til þess að styrkja ónæmiskerfi ykkar og bent á langtíma áhrif félagslegrar einangrunar og grimunotkunar á börnin okkar. Það kæmi varla nokkrum manni á óvart ef ég hyrfi eða hreinlega fyndist dáin vegna “sjálfsvígs” eða létist “af slysförum”, en slíkt hefur svo sannarlega gerst á Íslandi margoft áður þegar ekki tekst að þagga fólk,“ segir Elísabet og bætir við:

- Auglýsing -

„Það var byrjað með því að reka mig af Háskólasjúkrahúsinu okkar allra, 1,5 mánuði síðar voru starfsréttindi mín tekin af mér, síðan tók lögreglan við, en ég hef verið stöðvuð 6 sinnum á 3 vikum af lögreglunni m.á vegna gruns um að td taka of hægt af stað á grænu ljósi og vegna gruns um að hafa hugsanleg ætlað grímulaus inn í verslun. Loks var ég handtekin sl fimmtudagskvöld eins og ég væri stórhættulegur vopnaður glæpamaður þegar ég var að keyra vin minn heim. Í dag hefur svo fólk ráðist að mér á heimili mínu sem töluvert þarf að leggja á sig til að komast að. Ég get ekkert leitað þegar öryggi barna minna og mín er ógnað og vil biðja þjóð mína um stuðning gegn þessu áður en það verður of seint.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -