Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veruleika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Meirihluta lesenda Mannlífs fannst Skaupið lélegt eða í lagi: „Ég fílaði eldgosagrínið alveg“

Á slaginu 22:29 í gærkvöldi sátu líklegast velflestir landsmenn límdir við sjónvarps­skjái sína og fylgdust með Áramóta­skaupinu. Allir hafa álit á Skaupinu og getur það verið jafn misjafnt og við erum mörg. Mannlíf setti í loftið könnun að Skaupinu loknu og spurði einfald­lega „Hvernig fannst ykkur Skaupið?“

Niður­stöðurnar eru þessar.

Rúmlega 40% af þeim sem kusu þóttu Skaupið ömurlegt. Rúm 22% sögðu það frábært og rúm 45% fannst það „Svona allt í lagi“.
Ekki nema um 2% þeirra sem tóku þátt í könnuninni horfðu ekki á Skaupið.

Mannlíf fékk einnig nokkra valinkunna álits­gjafa til að leggja mat sitt á Áramóta­skaupið.

Hildur Eir Bolla­dóttir, prestur.

Mér finnst afar ólíklegt að nokkur muni sitja eftir með sárt ennið eftir skaupið í ár, enginn tekinn fyrir með mjög meinlegum hætti enda voru mörg stærstu mál ársins 2021 það erfið að kannski vildu höfundar skaupsins fara mjúkum höndum um þjóðar­sálina. Skaupið sótti í sig veðrið þegar á leið, Kristín Þóra Haralds­dóttir átti stórleik sem Lilja Alfreðs­dóttir, mér fannst karla­björg brand­arinn mjög góður og satt best að segja hló ég líka upphátt að krabbameins­sýna brand­aranum, Kötlu­grínið var gott svo voru bara líka þarna leikarar sem eru alltaf fyndnir.

Eva Ruza Miljevic, fjölmiðla­kona og skemmtikraftur með meiru.

Áramóta­skaupið byrjaði vel með upphafs­atriðinu og framan af hugsaði ég, já þetta er að svínvirka. Ég skellihló til dæmis yfir kaðla­atriðinu og fjöl­skyldunni sem skellti sér að eldgosinu, tengdi stíft við það að góla á fjöl­skylduna að passa sig á covidkaðlinum. Ég hló líka hatt yfir Only Fans pabbanum og 75.000 kr tipsinu hans. Eeeeen hinsvegar fór það allt í einu að missa pung og ég fór að detta út. Villi Neto er ótvíræður áramóta­skaups­meistari og ég hefði viljað sjá hann loka skaupinu með einhverri neglu. Hvar var atriðið um alla sem tóku sprettinn í Laugar­dalshöllina eins og brjálæðingar til að fá fyrstu sprautuna? Og hvaaaaar var Bónus svína­sketsinn!? Ég hefði viljað sjá það í skaupinu. Skaupið fær 6,3 í einkunn sem er hægt að námunda upp í 6,5. Krakka­skaupið fær hinsvegar 10 í einkunn

Grétar Þór Eysteinsson, prófessor í stjórnmála­fræði.

Mér hálf-síð-miðaldra karlinum hefur yfirleitt fundist áramóta­skaupið vera ágætt fyrir mína parta. Gildir þá einu hvort ég hef skelli­hlegið að öllu Skaupinu eða ekki, að það hefur alltaf mátt finna eitthvað gott til að hlæja að og svo botnar maður ekkert í sumu og finnst eitthvað líka vera misheppnaðir fimmeyringar. Þetta skaup er engin undan­tekning frá þessu. Mér fannst nú brand­arinn um fótbolta­landsliðið vera ágætis hugmynd en var teygt úr honum um of. Það sem ekki var teygt um of var talningin í Borgarnesi. Þar hefði mátt gera meira úr en gert var og einn stuttur fimmeyringur var eini afraksturinn. En nóg af einhverri neikvæðni – sem á alls ekki að vera aðal­inntakið hér. Mér fannst gaman að því að sjá djamm­þyrsta fólkið tekið í bakaríið í covidgríninu. Eins skemmtu bólusetningarbesserwisserarnir mér vel og líka færsér orða­leikirnir sem voru skemmtilega fléttaðir yfir í að gera grína að öðru – nefnilega Facebook fólkinu sem er svo mikilvægt og áhrifa­valdandi. Ég fílaði eldgosa­grínið alveg en toppurinn var þó undir lokin þegar Freyr Eyjólfsson brá sér í gervi Jakobs Frímanns þingmanns og Stuðmanns. Það var bara nóg að sjá Frey.

En semsé, almennt slapp þetta Skaup alveg til hjá mér. Það væri eitthvað að ef að hálf-síð-miðaldra karl­fauskur norður í landi myndi hlæja sig mátt­lausan af öllu efninu í áramóta­skaupinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innlent

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Neytendur eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni.

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra