Skóla- og frístundaráð Reykjavíkurborgar óskar eftir tilnefningum til hvatningaverðlauna fyrir leikskólastarf.
Munu verðlaunin verða afhent þann 7. febrúar næstkomandi en um er að ræða verðlaun sem veitt eru fyrir framúrskarandi leikskólastarf.
Þá geta allir tilnefnt til hvatningarverðlaunanna; foreldrar, starfsfólk leikskóla, skóla, ömmur og afar. Stuðlað verður að því að verkefnið sé hvatning til góðra verka og mið sé tekið af því við val á verðlaunahöfum.
Þrír leikskólar munu hljóta verðlaunin sem eru í formi verðlaunagrips og viðurkenningaskjals.
Tilnefningafrestur er til 30. desember næstkomandi og eru allir hvattir til þess að taka þátt.