Fimmtudagur 28. mars, 2024
0.8 C
Reykjavik

„Hvergi í þættinum er rætt við fagaðila sem framkvæma greiningar eða taka ákvörðun um lyfjameðferð“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Börnin okkar og á­byrgð RÚV! er yfirskrift greinar sem þau Vilhjálmur Hjálmarsson og Gyða Haraldsdóttir rita fyrir hönd ADHD samtakanna, en Vilhjálmur er formaður og Gyða varaformaður:

„Um þessar mundir sýnir RÚV þáttaröðina „Börnin okkar“ sem byggir á hugmynd Gunnþórunnar Jónsdóttur og Hermundar Sigmundssonar. Fjórði þáttur [frumsýndur 6. nóvember] bar heitið „Greiningar“ og reyndist svo stútfullur af einhliða fullyrðingum og áróðri gegn greiningum og lyfjameðferð að mér varð orða vant.“

Þau segja að „hvergi í þættinum er rætt við fagaðila sem framkvæma greiningar eða taka ákvörðun um lyfjameðferð, heldur byggt á samtölum við ýmsa aðila sem flest virðast eiga það sameiginlegt að telja greiningar rót alls ills. Greining séu „bara útlistun á þínum takmörkum,“ skilaboð til barns séu röng og verið sé að stimpla það. Orðræða af þessu tagi sýnir fátt annað en vanþekkingu viðmælenda á framkvæmd og tilgangi greininga.

Greining á vanda sem upp er kominn hjá barni felst í yfirgripsmikilli skoðun á þroska-, heilsu- og félagslegum bakgrunni barnsins, þróun og umfangi vandans, svo og ítarlegri kortlaggningu á styrkleikum barnsins og veikleikum þess. Niðurstöður greiningar gefa leiðbeiningu um hvaða meðferðir eða önnur úrræði séu líklegust til að skila árangri.

Jafnframt á niðurstaða að minnka líkur á að gripið sé til gagnslausra úrræða.“

Þau nefna einnig að „ef einhver telur þetta vera stimplun og röng skilaboð til barns, þá þarf viðkomandi kannski fyrst og fremst að líta í eigin barm.

- Auglýsing -

Að byggja ákvarðanir á þekkingu á aldrei að vera neikvæð staða. Um þverbak keyrir þó þegar fjallað er um lyf. Þar nota viðmælendur orð á borð við „ofvirknislyf,“ eins og ADHD lyfjameðferð snúi eingöngu að líkamlegri ofvirkni, sem fer fjarri. Í annan stað er fullyrt að ADHD lyf eigi að „draga úr t.d. hvatvísi — dempar þig,“ sem klárlega staðfestir að viðmælandi hefur engan skilning á út á hvað ADHD gengur né virkni ADHD lyfja.

Ítrekað er minnst á lyf vegna kvíða og þunglyndis, en hvergi tæpt á þeim möguleika að skortur á greiningu geti leitt til rangrar lyfjameðferðar, til dæmis þegar einkenni þunglyndis og/eða kvíða séu í raun merki um ógreint ADHD, einhverfu eða annað sem í raun er undirliggjandi ástæða.“

Að mati Vilhjálms og Gyðu undirbyggir „þáttagerðarfólk þessar ranghugmyndir svo með ítrekaðri notkun á nærmyndum af marglitum lyfjahylkjum sem flæða um eins og sælgæti; gamalt og ódýrt trix í sjónvarpsþáttagerð – iðulega notað til að vekja neikvæð hughrif hjá áhorfendum – það er hreinlega spurning hvort RÚV sæmi slík vinnubrögð.“

- Auglýsing -

Bæta þessu við:

„Hermundur kemur svo fram í einhvers lags vísindahorni, vitnar til kenninga Gilbert Gottlieb um stöðugt samspil þroski, vaxtar, reynslu og náms. Jafnframt að þroski einstaklings sé samspil erfða, taugakerfis, atferlis og umhverfis. Ég enga ástæðu til að draga þetta í efa, enda vel þekkt að t.d. ógreint eða vanmeðhöndlað ADHD – þar með talið viðbrögð innan skólakerfisins – hefur mikil áhrif á andlegan og félagslegan þroska barns.

Því miður kýs Hermundur og hans samstarfsfólk að hunsa þessa hlið með öllu. Þess í stað spyr þáttaferðarfólk hvort lyf séu alltaf lausnin og ýjar þess í stað að því að „regluleg og góð hreyfing og hreint matarræði [geti] t.d. breytt ýmsu til hins betra.“ Eða eins og einn viðmælandi segir, að „[…] mæta bara [barni] með virðingu og ást …!“

Hvað ADHD varðar þá er hreyfing vissulega eitt lykilatriða – og reyndar gildir það um alla, börn og fullorðna, rétt eins og kemur skýrt fram í fimmta þætti sem frumsýndur var viku síðar.“

Þau spyrja:

„En hvað er átt við með „hreinu“ mataræði og hvers vegna telst sjálfsögð ‘virðing og ást’ sem einhver töfralausn. Það sem okkur fannst kannski undarlegast er að í seinni hluta þáttar bentu viðmælendur á ýmsa þætti sem vissulega útskýra hvar hinn raunverulegu vandi liggur. Í mistökum við framkvæmd og skort á fjármagni. En á síðustu metrunum drukknar sú umfjöllun í fabúleringum um lyf og fallegri dæmisögu um mann í frakka, sem túlka má á ólíkan máta.

Fyrir hönd ADHD samtakanna viljum við árétta að niðurstöður fjölda rannsókna staðfesta gagnsemi og mikilvægi greininga, meðferðar og lyfja vegna ADHD. Ómálefnaleg umfjöllun og framsetning efnis sem er til þess fallið að ala á fordómum í garð greininga, meðferðar og notkunar lyfja fyrir fólk með ADHD, líkt og gert var í þessum þætti á RÚV er afar skaðleg og í fullkominni andstöðu við niðurstöður rannsókna.

Greiningar, meðferð og lyf bjarga lífum! Þáttaröðin er framleidd fyrir RÚV, undir dagskrárstjórn Skarphéðins Guðmundssonar og liggur því beinast við að spyrja dagskrárstjóra RÚV hvort efnistök og framsetning í þessum þætti samræmist gæðakröfum þessarar mikilvægu menningarstofnunar, sem Ríkisútvarpið sannanlega er?“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -