Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Ingó afbókaður allsstaðar: „Já. Þetta eru mjög mörg gigg“

Það viðrar ekki vel fyrir Ingó Veðurguð þessi dægrin, enda mál hans það mest umtalaða í samfélaginu í dag.

Afbókanir hrúgast inn og næsta víst að tekjutap, og mannorðs­missir, hafa mikil áhrif á líf Ingós.

Eftir að hópurinn Öfgar tók sig til og birti yfir tuttugu nafn­lausar sögur kvenna sem lýsa kyn­ferðis­legu of­beldi af hálfu Ingós, er til dæmis búið að af­lýsa þriðju seríu þáttanna „Í kvöld er gigg“ og segist Ingó hafa orðið af miklum tekjum undan­farnar vikur. Sögurnar sem Öfgar birtu voru nafn­lausar en hópurinn hefur fullyrt að hann hefði fengið allar frásagnirnar stað­festar.

Sjá einnig: Tryggvi safnar undir­skriftum til stuðnings Ingós – Þú getur stutt Veður­guðinn í barátt­unni

Stærsta fréttin hvað varðar afbókanir og tekju­missi Ingós er án efa þegar hann var afbókaður sem stjórn­andi brekku­söngsins í Eyjum um verslunar­manna­helgina, en honum hefur Ingó stýrt sleitu­laust síðan 2013. Þá fór skriðan af stað og síðan þá hefur hver afbókunin á eftir annarri litið dagsins ljós.

Einnig var afbókun á Kótelettuna – hátíð sem haldin var á Sel­fossi – heimabæ Ingós – á laugar­daginn, þungt högg fyrir tónlistar­manninn; bæði tekjulega og líka varðandi mannorðið. Heima­bærinn hafnaði honum.

Allt þetta stað­festir Ingó í sam­tali við vefmiðilinn visir.is.

„Þetta eru mjög mörg gigg. Ég hef haldið utan um þetta allt saman,“ en Ingó er með lögfræðing á sínum snærum og segist „bara fara rétta leið með þetta mál.“

Sjá einnig: Anna og Elísa fullyrða að Ingó Veðurguð hafi verið bannaður í félags­miðstöðvum – Sjáðu svar Samfés

Straum­hvörf urðu nýlega í máli Ingós þegar fyrsta konan sem hann á að hafa áreitt steig fram opinber­lega og undir nafni – Andrea Aldan Hauks­dóttir, eins og kom fyrst fram á mannlif.is.

Ekki er ólíklegt að með frumkvæði Andreu hafi nú þriðja #metoo-byltingin litið dagsins ljós eftir að kjörkuð Andrea reið á vaðið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið í kvöld. Síðdegis hvessir einnig suðvestanlands.
Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Ný skýrsla Sameinuðu þjóðanna fjallar um dráp á konum og stúlkum. María Rut Kristinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir leiða ljósagöngu á morgun.

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi