Fimmtudagur 28. mars, 2024
1.8 C
Reykjavik

IKEA innkallar barnasmekki vegna köfnunarhættu

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

IKEA innkallar bláa og rauða MATVRÅ smekki vegna mögulegrar köfnunarhættu.

 

Verslunin hvetur viðskiptavini sína sem eiga slíka smekki að taka þá tafarlaust úr notkun og skila þeim í IKEA. Smekkirnir verða að fullu endurgreiddir og er kvittun ekki nauðsynleg til að fá endurgreiðslu. Kemur þetta fram á heimasíðu IKEA.

Smekkirnir sem innkallaðir eru.

„Vöruöryggi er gríðarlega mikilvægt hjá IKEA. Vörurnar okkar eru prófaðar og standast allar viðeigandi reglugerðir og staðla. Þrátt fyrir það hafa okkur borist tilkynningar um að tölurnar á MATVRÅ smekkum geti losnað af og valdið köfnunarhættu.“

„Okkur hafa borist tilkynningar þess efnis að tölurnar geti losnað af ef barn togar í þær“ segir Emelie Knoester, viðskiptastjóri hjá IKEA of Sweden, og heldur áfram: „Öryggi viðskiptavina er forgangsmál hjá IKEA og því höfum við ákveðið grípa til fyrirbyggjandi aðgerða og innkalla bláa og rauða MATVRÅ smekki.

Smekkir sem bera sama nafn, MATVRÅ, og eru mynstraðir í grænum og gulum lit eru samt sem áður öryggir í notkun þar sem bæði hönnun og efnið sem notað er í þá er annað.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -