Miðvikudagur 24. apríl, 2024
8.1 C
Reykjavik

Ingibjörg um Jón: „Velur bráð sína af kostgæfni – oft einstakling sem er ekki með sterkt bakland“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fyrrverandi ráðherra skrifar á Facebook-síðu sína um Jón Baldvin, hennar fyrrum félaga í stjórnmálunum.

Þar gerir hún mál Jóns Baldvins Hannibalssonar að umtalsefni, en kveikjan að skrifum hIngibjargar Sólrúnar eru dagbókarfærslur Þóru Hreinsdóttur; fyrrum nemanda Jóns Baldvins Hannibalssonar í Melaskóla árið 1970, sem birtust í forsíðuúttekt Stundarinnar, en blaðið kom úr prentun fyrir helgi.

Jón Baldvin Hannibalsson.

Ingibjörg Sólrún byrjar færsluna svona:

„Jón Baldvin Hannibalsson ekki meir, ekki meir, hugsaði ég þegar ég frétti af þessu máli í síðustu viku og beitti mig eiginlega hörðu til að lesa þessa frásögn. Það er hins vegar skemmst frá því að segja að dagbókarfærslur Þóru Hreinsdóttur, 15 ára nemanda JBH í Melaskóla 1970, eru ótrúlega merkileg heimild um aðferðir JBH við að ná tökum á Þóru og hvaða afleiðingar það hafði fyrir hugarástand hennar. Í framhaldinu ákvað ég að lesa aftur allar þær 23 sögur sem safnað hefur verið saman af kynferðisbrotum og áreiti JBH á áratuga tímabili og í ljós kom ákveðið munstur sem gengur eins og rauður þráður í gegnum allt hans atferli.

JBH hagar sér eins og rándýr sem velur bráð sína af kostgæfni – oftar en ekki einstakling sem er ekki með sterkt bakland – sækir að henni með skipulögðum hætti, sýnir henni áhuga, jafnvel trúnað, vingast við hana og vinnur traust hennar. Þegar traustið er komið er eftirleikurinn auðveldur.“ skrifar Ingibjörg Sólrún og bætir við:

„Þetta er lýsing á ótrúlega ljótum og ójöfnum leik þar sem kennarinn, skólameistarinn, ráðherrann og sendiherrann misbeitir valdi sínu og sækir að unglingsstúlkum. Ég fékk vitneskju um eitt þessar mála árið 2007 þegar ég var formaður Samfylkingarinnar og það varð til þess að ég ræddi í trúnaði við JBH og bað hann að segja sig frá heiðurssæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík fyrir þingkosningarnar vorið 2007.

- Auglýsing -

Hann varð við þessari ósk minni en í stað þess að láta þar við sitja og sýna svolitla iðrun og hugarangur vegna framferðis síns fór hann rakleiðis í Silfur Egils og vældi yfir því að ég hefði hafnað honum í heiðurssætið á pólitískum forsendum. Þetta gerði hann vitandi að ég gæti aldrei sagt opinberlega hver var hin raunverulega ástæða fyrir því að ég vildi hann ekki í heiðurssætið.“

Hún færir í tal að „það var svo ekki fyrr en 5 árum síðar, þegar Guðrún Harðardóttir steig fram, sem ástæðan varð heyrinkunn. En af hverju er ég að skrifa um þetta núna? Er ekki nóg komið? Ég skrifa þetta vegna þess að Jón Baldvin Hannibalsson hefur aldrei viðurkennt misgjörðir sínar og enn láta margir þær sér í léttu rúmi liggja af því þeim finnst JBH hafa lagt svo margt að mörkum í íslenskri pólitík.

- Auglýsing -

Það kemur þessu máli hins vegar ekkert við og menn komast aldrei framhjá þeirri staðreynd að þann orðstír sem JBH ávann sér á hinum pólitíska vettvangi hefur hann sjálfur lítilsvirt með því að misbeita því valdi sem honum var falið gagnvart fjölmörgum unglingsstúlkum og konum. Þar er ekki öðrum um að kenna.“

Hún segir einnig að „ég skrifa þetta líka vegna þess að mál JBH er ekkert einsdæmi. Oft berast sögur af kynferðisáreitni og nauðung af hálfu karla sem eru vel liðnir, hæfleikaríkir, vel metnir og hátt á kvisti í verðleikasamfélaginu.

Við eigum mjög erfitt með að horfast í augu við að flottir karlar misbeiti valdi sínu gagnvart ungum konum og körlum. En það gerist nú samt og ef við neitum að horfast í augu við það þá er okkur líkt farið og fólki fyrri alda sem þagði yfir eða lét kyrrt liggja að heldri menn og valdsmenn misnotuðu undirsáta sína.

Takk Valgerður Þorsteinsdóttir fyrir að birta dagbókarfærslu móður þinnar og takk Bjarni Frímann Bjarnason fyrir þinn kjark. Við hin verðum að hafa kjark til að taka á þessum málum.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -