Svo virðist sem Ingó veðurguð sé enn sá sem mun stýra brekkusöngnum á þjóðhátíðinni í Eyjum um verslunarmannahelgina, ef marka má upplýsingarnar sem enn eru inn á Dalurinn.is.
Þar er Ingó enn auglýstur sem sá sem stýrir brekkusöngnum sem og að hann muni þar að auki stíga á svið með hljómsveit sinni á laugardagskvöldinu.
Af hverju ætli þjóðhátíðarnefnd sé ekki búin að uppfæra dagskrá sína ? Nógur hefur verið tíminn að minnsta kosti til þess að gera svo. Auk þess þætti sjálfsagt að sjá hver í rauninni er að fara að stýra brekkusöngnum eftir að afráðið var að Ingó myndi ekki sjá um giggið í ár. Ákaflega slök vinnubrögð hjá þjóðhátíðarnefndinni.