Þriðjudagur 16. apríl, 2024
2.1 C
Reykjavik

Ingólfur: „Mál Vítalíu það mikilvægasta sem gerst hefur varðandi stöðu karla og kvenna á Íslandi“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Félagsfræðiprófessor segir mál Vítalíu Lazareva vera eitt það mikilvægasta sem gerst hafi varðandi stöðu kynjanna á Íslandi um áratugaskeið.

„Framhald af því sem þarna var að gerast og það að allir gerendur, eða þeir sem bent var á þarna, þurfi að víkja. Það er mjög merkilegt. Þarna eru það ekki hverjir sem er sem eru ásakaðir,“ en þetta segir Ingólfur V. Gíslason, prófessor í félagsfræði.

Hann segir að Metoo bylgjan hafi ýtt undir samfélagsbreytingar og að erfitt sé að gera sér í hugarlund hverjar afleiðingarnar þegar til lengri tíma er litið fyrir mennina sem eru ásakaðir; áhrifamenn í íslensku viðskiptalífi og hafa farið eða verið sendir í leyfi vegna ásakana um kynferðisbrot eða verið sagtupp.

Ingólfur segir klárt að svona mál snúist ekki um hefnd heldur viðurkenningu:

„Það er kannski ekki aðalatriðið. Mér hefur ekki fundist sem hefndarhugsun sé rík hjá þeim sem koma fram og vilja segja frá. Heldur að fá viðurkenningu og afsökun og svo framvegis, en ég held að hefndin sé ekki ofarlega þarna í huga“ segir hann og telur skilaboðin síast út í samfélagið; um hvað má og hvað má ekki:

„Og undir hvaða kringumstæðum valdaójafnvægi er það mikið að menn eiga að bakka út úr aðstöðunni og það var náttúrlega í þessu tilfelli. Og það var svo sannarlega komin tími til, vegna þess að alvarlegasta vandamálið í samskiptum og stöðu karla og kvenna á Íslandi er það ofbeldi sem konur hafa þurft að sæta af hálfu karla“ segir Ingólfur og bætir við:

- Auglýsing -

„Það er í raun og veru ekki fyrr en við erum búin að stöðva það og gera samfélagið jafn tryggt fyrir konur eins og karla sem við getum í raun og veru vænst þess að það verði jafnrétti á Íslandi“ segir Ingólfur og segir mál Vítalíu gífurlega stórt mikilvægt skref á þeirri vegferð:

„Alveg klárlega. Ég held að þetta sé eitt það mikilvægasta sem gerst hefur varðandi stöðu karla og kvenna síðustu áratugi á Íslandi.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -