Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veruleika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

10 ár sem bæjarstjóri og 24 ár í bæjarstjórn

Ármann Kr. Ólafsson
Ármann Kr. Ólafsson

Ármann Kr. Ólafsson hélt sína síðustu ræðu í bæjar­stjórn Kópavogs á 1258.fundi bæjar­stjórnar, sem haldinn var þriðjudaginn 24. maí og var síðasti fundur kjör­tímabilsins.  Hann á að baki 24 ár í bæjar­stjórn Kópavogs og 10 ár sem bæjar­stjóri.

Ármann, sem varð oddviti Sjálfstæðis­flokksins árið 2010, var kjörinn bæjar­stjóri Kópavogs 14. febrúar 2012 af meirihluta Sjálfstæðis­flokks, Framsóknar­flokks og Lista Kópa­vogsbúa.

Hann var svo bæjar­stjóri í meirihluta Sjálfstæðis­flokks og Viðreisnar 2014 til 2018 og meirihluta Sjálfstæðis­flokks og Framsóknar­flokks 2018 til 2022.

Ármann var kjörinn í bæjar­stjórn Kópavogs árið 1998 og á því um 480 fundi í bæjar­stjórn að baki. Á ferlinum hefur hann setið í bæjarráði, atvinnumála­nefnd, mennta­ráði og framkvæmda­ráði. Þá hefur hann verið formaður skipulags­nefndar, félagsmála­ráðs og skóla­nefndar Kópavogs, og verið forseti bæjar­stjórnar. Hann hefur setið í hafnar­stjórn og verið hafnar­stjóri frá 2018.

Fleiri nýttu fundinn til að kveðja

Í sinni síðustu ræðu nýtti Ármann tækifærið og rifjaði upp ýmsar breytingar á bænum og starfsemi hans en íbúar voru tæp 20.000 þegar hann náði kjöri og hefur bærinn því tvöfaldast að stærð og umfang stjórn­sýslu vaxið sem því nemur auk þess að fleiri verkefni hafa færst til sveitar­félaganna en áður var.

Ármann þakkaði samstarfs­fólki í gegnum tíðina fyrir samstarfið og minntist með hlýju þeirra bæjar­stjóra sem hann starfaði með sem bæjar­fulltrúi, en það eru þau Sigurður Geirdal, Hansína Á Björgvins­dóttir, Gunnar Birgisson, Gunn­steinn Sigurðsson og Guðrún Páls­dóttir.

Fleiri bæjar­fulltrúar nýttu fundinn til að kveðja en þetta var einnig síðasti fundur Birkis Jóns Jónssonar, Jóns Finnboga­sonar, Margrét Friðriks­dóttir, Pétur Hrafn Sigurðar­sonar og Einars Þorvarðar­sonar sem reyndar er vara­bæjar­fulltrúi í þeirri bæjar­stjórn sem nú tekur við.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innlent

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Neytendur eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni.

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra