Fimmtudagur 25. apríl, 2024
6.1 C
Reykjavik

90 smitaðir hér á landi – Um 700 í sóttkví

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

90 hafa nú greinst með COVID-19 smit hér á landi. Þórólfur Guðnason greinir frá þessu á upplýsingafundi almannavarnardeildar ríkislögreglustjóra. Flestir þeirra smituðu eru með væg einkenni. Einn hefur þurft að leggjast inn á spítala vegna COVID-19-sýkingar.

Þórólfur segir fjögur svokölluð þriðja stigs smit vera komin upp. Óvissa er um uppruna tveggja smita.

Að sögn Þórólfs hafa um 830 sýni verið tekin. Um 700 einstaklingar eru í sóttkví hér á landi.

Þórólfur segist binda miklar vonir við samstarf heilbrigðisyfirvalda við Íslenska erfðagreiningu og verið er að móta það samstarf.

Skráning í bakvarðarsveit stendur yfir

Alma Möller, landlæknir, nýtti þá tækifærið til að benda á skráningaform á hrn.is þar sem heilbrigðisyfirvöld óska eftir liðsinni heilbrigðisstarfsfólks úr hópi lækna, hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða í svokallaða bakvarðarsveit heilbrigðisþjónustunnar.

- Auglýsing -

Hún segist búast við auknu álagi vegna útbreiðslu COVID-19 en þá þurfi líka að sjá til þess að hægt sé að veita aðra heilbrigðisþjónustu.

Mikil áhrif á skólastarf

Steinn Jóhannsson, rektor Menntaskólans við Hamrahlíð, svaraði spurningum um smit sem kom upp í skólanum. Hann segir það hafa verið mikil vonbrigði að frétta að nemandi væri sýktur og að það hafi haft mikil áhrif á skólastarf.

- Auglýsing -

Hann segir sálfræðing skólans hafa veitt nemendum andlega þjónustu. Í dag er hefðbundið skólahald og þeir nemendur sem eru í sóttkví vegna smitsins nýta tæknina í skólastarfinu.

Fréttin hefur verið uppfærð.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -