Fimmtudagur 25. apríl, 2024
9.8 C
Reykjavik

95 sýni verið rannsökuð hér á landi vegna COVID-19: 2 sýni í greiningu

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Niðurstöður úr rannsókn 10 sýna sem tekin voru í gær liggja fyrir og eru þau öll neikvæð fyrir veirunni sem veldur COVID-19 sjúkdómi. Enn eru 2 sýni í greiningu hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítala. Vonast er til að niðurstaða úr þeim liggi fyrir síðar í dag eða á morgun. Kemur þetta fram í tilkynningu frá Almannavarnadeild.

Alls hafa 95 sýni verið rannsökuð hér á landi og aðeins eitt af þeim reyndist vera jákvætt fyrir COVID-19. Sá einstaklingur, maður á fimmtudagsaldri sem nýverið var á Norður-Ítalíu, er enn í einangrun á Landspítala. Honum heilsast vel, en líkt og komið hefur fram sýnir hann dæmigerð einkenni sjúkdómsins (hósti, hiti og beinverkir). Hafa ber í huga að veiran veldur ekki alvarlegum veikindum hjá yfirgnæfandi hluta fólks.

Viðbúnaður vegna farþega frá Ítalíu

Fyrir helgi lýsti almannavarnadeild ríkislögreglustjóra yfir hættustigi vegna COVID-19 í samvinnu við sóttvarnalækni og er sem fyrr unnið samkvæmt Landsáætlun um heimsfaraldur. Áhættumat og skilgreind hættusvæði eru óbreytt en endurmetin daglega.

Síðdegis í gær lenti flugvél Icelandair á Keflavíkurflugvelli eftir flug frá Veróna á Ítalíu. Um borð voru um 180 farþegar sem höfðu dvalið í norðurhluta landsins. Sérstakur viðbúnaður var viðhafður vegna þessa, þar á meðal var heilbrigðisstarfsfólk á staðnum til að koma upplýsingum til farþega um skilyrði fyrir heimasóttkví,  kynningu á síma 1700 sem fólkinu er ráðlagt að hringja í finni það fyrir einkennum (hósti, hiti, beinverkir, mæði) og aðrar upplýsingar í tengslum við COVID-19. Þrír farþegar upplýstu heilbrigðisstarfsfólk um að þau fyndu fyrir flensueinkennum og voru sýni tekin hjá þeim til greiningar.

Laugardaginn 7. mars er von á öðrum hópi til landsins frá Veróna á Ítalíu og verður sami viðbúnaður viðhafður þá.

- Auglýsing -

10 íslendingar í sóttkví á Tenerife

Starfsfólk sóttvarnalæknis er í góðu sambandi við 10 Íslendinga sem eru í sóttkví á H10 Costa Adeje Palace hótelinu á Tenerife. Hefur hópurinn verið hvattur til að fylgja fyrirmælum spænskra heilbrigðisyfirvalda en þau bera ábyrgð á sóttkvínni og á þeim einstaklingum sem þar eru. Borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins hefur jafnframt verið fólkinu innan handar og sér um samskipti við spænsk yfirvöld vegna málsins. Ekki er vitað hvenær sóttkví verður aflétt á hótelinu eða hvenær von er á fólkinu til Íslands.

Að endingu lýsir almannavarnadeild ríkislögreglustjóra yfir ánægju að undanþágubeiðnir hafi fengist frá verkfalli félagsmanna Eflingar svo hægt verði að sinna sorphirðu og þrifum á hjúkrunarheimilum á höfuðborgarsvæðinu.

- Auglýsing -

Sóttvarnalæknir minnir á að einstaklingar, með búsetu á Íslandi, sem hafa verið á skilgreindum áhættusvæðum og snúa heim eru hvattir til að halda sig heima í 14 daga eftir að þeir hafa yfirgefið skilgreind áhættusvæði, sjá leiðbeiningar til einstaklinga í sóttkví. Ef þeir fá einkenni frá öndunarfærum, sérstaklega með hita, skulu þeir hafa samband við Læknavaktina í síma 1700 eða sína heilsugæslu símleiðis en ekki mæta óboðaðir á sjúklingamóttökur.

Að óbreyttu verður næsti upplýsingafundur almannavarna og sóttvarnalæknis á morgun, mánudaginn 2. mars.

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -