Arna Magnea Danks
„Við erum bara fólk eins og annað fólk“
Arna Magnea Danks
Fólk

Björk Guð­munds­dóttir er ólétt

Peningar

Samherji hyggst reka vinnu­búðir með gist­ingu

Fólk

Selja fal­lega sveita­sælu í Ölfusinu með risa­stórri lóð

Minning

Svanur Jóhann­es­son er lát­inn

Innlent

Eft­ir­lýstur í átta mán­uði á Íslandi en finnst ekki

Innlent

Kona á fimm­tugs­aldri ákærð fyrir að aug­lýsa vændi á Akureyri

Innlent

MAST varar við neyslu á skinku frá Stjörnu­grís

Pólitík

Sakar Trygg­inga­stofnun um að veita rangar upp­lýs­ingar og sýna for­dóma

Heimur

Óvenju­leg inn­rás mar­íu­bjalla vekur óhug

Pólitík

Glúmur segir Ólaf Ragnar „mesta vind­hana sem Ísland hefir fætt og klætt“

Aðdáendur Jordan Peterson æfir yfir pistli Stefáns: „Hann á mikið ólært“

Aðdáendur Jordan Peterson æfir yfir pistli Stefáns: „Hann á mikið ólært“

Nokkur ólga er í Facebook-hópnum „Jordan Peterson-klúbb­ur­inn“ vegna pistils sem birt­ist í Frétta­blað­inu í dag og fjallar um sál­fræð­ing­inn kanadíska, sem flutti fyr­ir­lestur fyrir fullu húsi í Háskóla­bíói á laug­ar­dag­inn var.

Fyr­ir­les­ar­inn og rit­höf­und­ur­inn Jordan Peterson er sál­fræð­ingur að mennt og starf­aði sem pró­fessor í sál­fræði við Háskól­ann í Toronto. Skoðanir hans og mál­flutn­ingur hafa verið umdeild í gegnum tíð­ina. Hann á sér dyggan aðdá­enda­hóp en sömu­leiðis and­stæð­inga sem hafa gagn­rýnt orð­ræðu hans harka­lega.

Á sunnu­dag birt­ist við­tal í Íslandi í dag sem Snorri Másson tók við Jordan Peterson. Í við­tal­inu átti Peterson frum­kvæði að umræðu um mál­efni trans­fólks, en hann sagði meðal ann­ars að heil­brigð­is­starfs­fólk lim­lesti börn með skurð­að­gerðum. Hann sagð­ist einnig vilja banna aðgerðir á trans­börnum undir 18 ára aldri og gera þeim laga­lega kleift að lög­sækja heil­brigð­is­starfs­fólk sem fram­kvæmi á þeim slíkar aðgerðir.

Eftir við­talið við Peterson árétt­aði Snorri að sárasjald­gæft væri að þær kyn­leið­rétt­ing­ar­að­gerðir sem hann vís­aði til væru fram­kvæmdar á ein­stak­lingum yngri en 18 ára í heim­inum. Samkvæmt heim­ildum frétta­stofu Stöðvar 2 hefðu engar slíkar aðgerðir verið fram­kvæmdar á ein­stak­lingi yngri en 18 ára á Íslandi. Stundum væru kyn­horm­óna­bælandi með­ferðir not­aðar til þess að styðja við trans ung­menni en löng reynsla væri komin á slíkar með­ferðir.

Ummæli Peterson hafa vakið hörð við­brögð innan trans­sam­fé­lags­ins á Íslandi.

„Trans fólk er til, trans börn eru til“

Í dag birt­ist skoð­anapist­ill í Frétta­blað­inu, svo­kall­aðir bak­þankar, þar sem Peterson og fyr­ir­lestur hans eru umfjöll­un­ar­efnið.

Þar segir meðal ann­ars:

„Þessi fyr­ir­lestur var sömu helgi og leg­hafar vest­an­hafs misstu sjálf­ræði yfir eigin lík­ama, sem aðstoð­ar­maður ráð­herra sagði rétta ákvörðun, í ljósi hans tak­mark­aða skiln­ings á banda­rísku lagaum­hverfi. Þetta gerði hann í stað­inn fyrir að taka sið­ferð­is­lega afstöðu.“ Höfundur vísar þar til Brynjas Níels­sonar, aðstoð­ar­manns dóms­mála­ráð­herra og pistils sem hann skrif­aði nýverið á Facebook-síðu sína.

„Leghafar eiga að eiga algjört og ótví­rætt vald yfir eigin lík­ama. Trans fólk er til, trans börn eru til – til allrar ham­ingju. Til and­skot­ans með þau sem básúna annað.“

Óánægja meðal aðdáenda Peterson

Ef marka má skjá­skot sem blaða­manni bár­ust, hefur skap­ast heit umræða í kringum pistil­inn í íslenskum Facebook-hópi sem nefn­ist Jordan Peterson-klúbb­ur­inn og virð­ast margir ósáttir. Í upp­hafs­færsl­unni er pistl­inum deilt og því velt upp hvers vegna Peterson mæti svo miklu hatri í íslenskum fjöl­miðlum.

Davíð Sig­ur­þórs­son seg­ist telja að hluti ástæð­unnar fyrir hatri á Peterson, sem hann segir að mestu óígrundað, sé að hann stand­ist ekki mátið að taka harka­lega til orða „og fara ein­staka sinnum yfir í að stuða bara til að stuða.“

Guð­mundur Pálsson er ósam­mála. „Mér sýn­ist þó að hann taki sterkar til orða því hann sér vissa hluti skýrar nú en áður. Við sáum það margir áður en hann opn­aði augun en hann hefur orð­kynngi sem margir vilja hlusta á.“

Davíð svarar Guðmundi: „Ég er búinn að fylgj­ast með honum frá „upp­hafi“ og þessi rudda­lega orða­notkun hefur bara auk­ist hjá honum og það er ekki séns að það sé óvart. Hann veit alveg hvað hann er að gera.“

Guð­mundur vill tengja harka­lega orð­ræðu Peterson við trú. „Hann er trú­aður orð­inn og því fylgir að sjá betur grein­ar­mun góðs og ills. Það er grein­ar­munur sem var alls ekki til áður, en þegar hann þrýstir á er ekki lengur til­efni til disku­sjóna um það sem aug­ljós­lega er rangt.“

Jón Hannes svarar upp­hafsinn­legg­inu og segir: „Það er svo reitt. Reiðin er svo sterk og rétt­lát, því JP varpar ljósi á botn­lausa hræsni og vit­leysu vinstr­is­ins. Blaða­manna­stéttin og kenn­ara­stéttin er stút­full af þessum nýmarxísku ruglu­döllum.“

„Fjöl­miðlar eru orðnir að óvinum fólks­ins. Svosem eðli­legt að þeir hegði sér svona miðað við það,“ segir Baldur Ingi.

Guð­mundur Pálsson segir pistil­inn sýna að fjöl­miðla­menn séu í ólækn­andi ástandi. „Það eina sem hrífur er að snið­ganga fjöl­miðl­ana með öllu, bæði fólk og fyr­ir­tæki. Láta þá fara á haus­inn.“

Blaða­mað­ur­inn Jakob Bjarnar Grét­ars­son tjáir sig við færsl­una og segir fólk verða að kunna að gera grein­ar­mun á við­horfspistlum og frétta­flutn­ingi. „Nú kann það svo að vera að rit­stjórnir þessa lands, og sumar þá meira en aðrar, ættu að fara í nafla­skoðun hvað það varðar að við­var­andi rétt­trún­aður sé far­inn að brengla objectíva frá­sögn. Ég ætla ekki að skjóta loku fyrir það. En að taka pistil þessa labbakúts, sem þráir að vera Twitterhetja, þráir að telj­ast fynd­inn en er það auð­vitað ekki því það er ekk­ert til sem heitir pc-grín eðli máls sam­kvæmt, henda á loft og segja: Fjöl­miðlar eru óvinir fólks­ins … ég er hræddur um að Jordan Peterson gæfi ekki mikið fyrir slíka rök­semda­færslu.“

Í kjöl­far ummæla Jakobs Bjarnars ákveða fleiri að hjóla í pistla­höf­und­inn, Stefán Ingvar Vig­fús­son, en hann er sviðs­höf­undur, pistla­höf­undur og grínisti. Magnús Þór grípur orð Jakobs Bjarnars þar sem hann kallar pistla­höf­und­inn „labbakút“ á lofti. „Þessi labbakútur var einmitt að skamm­ast í fólki á brand­ara síðu um dag­inn. Hann tók það nefni­lega að sér blessuð sálin að upp­lýsa heimskan almúg­ann hvað væri fyndið, hann er nefni­lega „atvinnu grínisti“ og veit hvað hann syngur.“

Jakob Bjarnar svarar þá Magnúsi og heldur áfram að beina sjónum að per­sónu pistla­höf­undar og starfi hans: „Ég hef varla vitað ófyndn­ari mann og það liggur við að maður finni til með woke-hjörð­inni sem telur sér auð­vitað skylt að kreista uppúr sér hlátur þegar hann tekur til máls. Átak­an­legt.“

Fjöl­miðla­mað­ur­inn Frosti Logason leggur líka orð í belg í athuga­semd við færsl­una: „Þessi hefur mikið verið að taka að sér hlut­verk hins grjót­harða net­níð­ings á Twitter und­an­farið. Hans sér­grein þar eru útúr­snún­ingar rétt eins og í þessum pistli. Hann á mikið ólært.“

Þess má geta að Stefán Ingvar er hluti af uppi­stands­hópnum VHS, en sýn­ingar þeirra hafa vakið lukku og verið vel sóttar, þótt erfitt sé að finna teng­ingu pistils hans við þann feril.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Er Sabrina Pasterski næsti Einstein?

Eftir að hafa smíðað flugvél á unglingsárum rannsakar Sabrina Pasterski nú svarthol, þyngdarafl og eðli rúmtímans.
Innlent

Maður játar að hafa brotið rúður í nærri þrjá­tíu bílum á Sel­tjarn­ar­nesi

Innlent

Erfða­rann­sóknir á Íslend­ingum lyk­il­at­riði í þróun nýs megr­un­ar­lyfs

Innlent

Eyjan sem átti að hverfa árið 2020 stendur enn upp úr sjó

Pólitík

„Það var stór­kost­legt að vakna í morgun“

Innlent

Innlent

Umboðs­maður Alþingis krefur Útlend­inga­stofnun svara

Fjölmargar kvartanir vegna tafa á afgreiðslu umsókna hafa borist umboðsmanni, sem vill skýringar á biðtíma.
Innlent

Drífa segir frjálst val í vændi oft vera blekk­ingu

Innlent

Lög­reglan gerði mis­tök en íslenska ríkið sleppur við bætur

Innlent

Nú er hægt að spjalla við lög­regl­una á net­inu

Innlent

Egill segir íslenska fjöl­miðla fasta í einni mestu fréttagúrku síð­ari ára

Innlent

Fíkni­efna­bóndi í Reykja­vík dæmdur í fang­elsi