Fimmtudagur 25. apríl, 2024
5.1 C
Reykjavik

Aðgerðaleysi vegna myglu og raka – „Við eigum eftir að sakna ykkar allra mjög mikið“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

,,Kæru vinir – með sorg í hjarta þá þykir okkur mjög leitt að tilkynna ykkur að við höfum þurft að loka Hótel Volcano og Festi bistro & bar vegna rakaskemmda og myglu,“ skrifa rekstraraðilar Hótels Volcano og Festi bistro&bar í Grindavík í tilkynningu á Facebook. Þá segja þau að eigendur hússins hafi leitt hjá sér kvartanir vegna raka og myglu. Í tilkynningunni segjast þau hafa kvartað ítrekað en vegna aðgerðaleysis eiganda þurfi nú að loka hótelinu og veitingastaðnum. Hótelið, sem er nýtt, opnaði fyrir tæpu ári síðan en hér að neðan má lesa tilkynninguna í heild sinni.
Vísir greindi fyrst frá málinu.

,,Kæru vinir – með sorg í hjarta þá þykir okkur mjög leitt að tilkynna ykkur að við höfum þurft að loka Hótel Volcano og Festi bistro & bar vegna rakaskemmda og myglu. Við eigum eftir að sakna ykkar allra mjög mikið og þökkum kærlega fyrir okkur.

Húsnæðið að Víkurbraut 58 í Grindavík, áður Festi samkomuhús var tekið á leigu í maí í fyrra og átti eigandi þess Lundur fasteignafélag að gera við glugga í því fyrir 1. júlí 2021

Í stuttu máli var það ekki gert og hefur því undanfarna mánuði þurft að taka herbergi úr sölu vegna leka og skemmda í þeim. Þar sem eigandi húsnæðisins brást ekki við ítrekuðum kvörtunum og sinnti ekki úrbótum fékk Hótelið Eflu til að skoða húsnæðið. Í skýrslu Eflu frá því í mars kemur fram að mygla hafi fundist á hótelinu, leki sé víða í húsinu og skemmdir.

Í kjölfarið óskaði Hótel Volcano eftir að Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja kæmi og skoðaði húsnæðið sem það gerði. Í eftirlitsskýrslu embættisins frá 1. apríl sl., kemur fram að það sé mat Heilbrigðiseftirlitsins að raka- og mygluvandamál í hótelbyggingunni séu það útbreidd og umfangsmikil að heilsu manna sem þar dveljast sé hætta búin. Því sé ráðlegast að hætta strax hótel- og veitingarekstri og ráðast í úrbætur með hliðsjón af ráðleggingum Eflu og leiðbeiningum Umhverfisstofnunar. Í skýrslunni er á það bent að Heilbrigðiseftirlitið hafi tekið til meðferðar að stöðva starfsemi hótelsins vegna útbreiddra raka- og mygluvandamála sem geta stefnt heilsu manna sem þar dvelja í hættu.

Því sjáum við okkur ekki annað fært en að hætta rekstri til að valda ekki skaða hjá þeim sem okkur dvelja.

- Auglýsing -

Takk æðislega fyrir okkur’’

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -