Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Ættleidd til Íslands – Valdi barnið með lokuð augu: „Þau voru forvitin um hvað ég væri dökk“

Friðrik Agni Árnason ræddi við móður sína og ömmu í þættinum Ugla sat á kvisti á Rás 1.

„Þetta er drottningin okkar, hún Maya,“ stóð í bréfi sem móðir Mayu, fyrstu stúlkunnar sem var ættleidd opinber­lega til Íslands frá Asíu, fékk sent frá munaðar­leysingja­hæli á Indlandi árið 1968. Móðir Mayu er frá Tékkóslóvakíu en alin upp í Þýska­landi. Hún flutti til Þýska­lands þegar Maya var níu ára og barnið varð eftir. Barnabarn hennar segir söguna af mæðgunum.

Maya Jill Einars­dóttir er fyrsta barnið sem var opinber­lega ættleitt til Íslands frá Asíu. Hún fæddist á Indlandi árið 1966 en stelpan fannst í borg sem tilheyrir Mumbai. Tveir ókunnugir menn fundu hana aðeins nokkurra vikna gamla innan um önnur götubörn og fóru með hana á heimili fyrir munaðar­laus börn í Mumbai. Þremur árum síðar var hún ættleidd til Íslands og fékk afmælis­daginn 28. október.

Móðir hennar, Liselotte Bensch Fuchs, er fædd í Tékkóslóvakíu en flúði þaðan til Þýska­lands. Hún bjó á Íslandi þegar hún ættleiddi Mayu. Friðrik Agni Árnason, sonur Mayu og barnabarn Liselotte, segir sögu mæðgnanna í þættinum Ugla sat á kvisti á Rás 2.

Allir þekktust og hjálpuðust að

Liselotte flutti með fjöl­skyldunni frá Tékkóslóvakíu til Berlínar og var faðir hennar undir eftirliti stjórn­valda. Þetta voru miklir óróatímar og lenti faðir hennar nokkrum sinnum í fangelsi fyrir að smygla fólki frá austur Berlín til vesturs. Svo flutti litla fjöl­skyldan til Dusseldorf þar sem hjónin bjuggu allt sitt líf í nýbyggðri blokk sem hýsti tuttugu og eina flótta­fjölskyldu.

„Allir þekktust og hjálpuðust að. Þau þekktu flótta­lífið og vissu hvernig best væri að hjálpa.“

Sautján og átján ára þurftu Liselotte og systir hennar að byrja að vinna fyrir sér og flytja heiman því það var þröngt í búi. Þá var stungið upp á því að þær færu í að læra hjúkrun. Þær fengu vinnu á spítala og þar kynntist Liselotte konu sem átti dóttur sem hafði ákveðið að taka sér ársfrí frá vinnu í banka og flytja til Íslands til að starfa sem sjúkra­liði. Liselotte var forvitin og fékk sjálf heimilis­fangið hjá Landa­kotsspítala. Þangað skrifaði hún bréf og bauð fram starfs­krafta sína og systur sinnar. Henni var strax svarað að þær væru velkomnar og þær héldu af stað þangað árið 1963.

Valdi barnið með lokuð augu

Þegar hún fékk fregnir af því að hún ætti von á stelpu voru henni sendar myndir af nokkrum stúlkum til að velja úr. Hún var ekki viss hvernig ætti að velja.

„Ég vildi stelpu og það voru bara stelpur í boði en það skipti engu máli fyrir mig hvort hún væri eins eða tveggja ára. Ég var í algjörum vandræðum,“ rifjar Liselotte upp. Hún skoðaði myndirnar oft og ákvað svo að velja þær með ugla sat á kvisti. „

Ég valdi myndina með lokuð augu, skellti í umslag og sendi til baka. Ég fékk svo svarið: Já, þetta er drottningin okkar hún Maya.“

Þau voru forvitin um hvað ég væri dökk

Um tíu tímum eftir heimkomu segir Liselotte að Maya hafi áttað sig á því að hún væri komin heim. „Þá byrjaði hún að leiða mig, og okkur öll. Hún sagði alltaf: Leiða mig. Þannig gekk það svo mánuðum skipti,“ rifjar hún upp. Þegar hún lagði barnið í rúmið stóð hún upp við rimlana og hvíslaði: „Mamma.“

Mægðurnar voru strax samrýmdar. Á Íslandi göptu margir yfir Mayu og dökku hörundi hennar, en barnið var fljótt að aðlagast og eignast vini og allir vildu leika við hana. „Ég átti auðvelt með að eignast vini sem barn. Þau voru forvitin um hvað ég væri dökk og með dökkt hár en það var engin stríðni eða neitt svoleiðis,“ segir Maya.

Í leik­skólanum fékk hún súrmjólk í hyrnu og söng í rólunum og fór í sund með dóttur nágranna­konunnar. Æskan var ljúf á Laugarás­veginum þar sem fjöl­skyldan bjó. Maya segir að það hafi alltaf verið líf í kringum sig og hún upplifði enga stríðni, bara forvitni. Krakkarnir fóru í Yfir, Brennó og Teygju­tvist og út að renna sér í brekkunum. Svo var kallað á hana og dreng sem bjó á sömu hæð í átta hæða blokkinni sem Maya bjó í: „Þórir og Maya, inn að borða!“

Hægt er að hlýða á báða þættina hér í spilara RÚV.

Friðrik Agni og Maya Jill
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Mette Frederiksen segir gagnrýni á orðaval sitt ekki lýsa afstöðu sinni. Ummæli hennar í stjórnmálahlaðvarpi hafa vakið umræðu í Danmörku.
Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Innlent

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Áhorfandi sagði táningsstúlku sem dæmdi leikinn að drepa sig.

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík