Fimmtudagur 25. apríl, 2024
9.1 C
Reykjavik

Áföll í æsku tengd einkennum fyrirtíðaraskana á fullorðinsárum

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Nýjar niðurstöður úr rannsókninni Áfallasaga kvenna voru birtar á vef BMC Medicine þann 21.2.2022.

Samantekið benda niðurstöður þessara tveggja vísindagreina til þess að forvarnir í barnæsku og stuðningur við börn sem lenda í áföllum geti haft mikilvæg áhrif á heilsufar á fullorðinsárum.

Þessi rannsókn tók til þeirra tæplega 12.000 þátttakenda rannsóknarinnar Áfallasögu kvenna sem höfðu haft blæðingar árið fyrir þátttöku. Konurnar svöruðu ítarlegum spurningalista, m.a. um áföll í æsku og einkenni fyrirtíðaraskana en það eru margvísleg líkamleg og andleg einkenni kvenna í aðdraganda blæðinga.

Niðurstöður sýndu sterk tengsl milli áfalla í æsku og einkenna fyrirtíðaraskana á fullorðinsárum — þannig voru konur sem höfðu upplifað fjögur eða fleiri áföll í æsku meira en tvöfalt líklegri til að þjást af einkennum fyrirtíðaraskana en þær sem ekki áttu sögu um áfall í æsku.  Þau áföll í æsku sem höfðu sterkust tengsl við einkenni fyrirtíðaröskunar voru kynferðislegt ofbeldi og tilfinningaleg vanræksla.

Þetta er önnur vísindagreinin sem birst hefur á stuttum tíma frá rannsókninni Áfallasögu kvenna sem sýnir fram á mikilvægi áfalla í æsku kvenna í þróun heilsubrests á fullorðinsárum. Nýlega birtust niðurstöður í vísindaritinu eLife um tengsl áfalla í æsku við almennan geðheilsuvanda og skertar getu til að takast á við áskoranir daglegs lífs.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -