Álftin sem drapst við Upphéraðsvegi í Fellum við bæinn Kross innan við Fellabæ í gærmorgun, reyndist ekki hafa verið skotin eins og sagt var frá í fréttum í gær. Leit út eins og skotgat væri á höfði hennar.
Samkvæmt lögreglunni á austurlandi, gaf sig fram ökumaður við lögregluna og kvaðst hafa ekið á álft á þessum slóðum í gærmorgun. Láðist honum hinsvegar að tilkynna atvikið á þeim tíma.
Vegna rannsóknar málsins og gruns um skotáverka var í gær dýralæknir fenginn í að meta dánarorsök álftarinnar en fuglinn er friðaður hér á landi. Komst dýralæknirinn að þeirri niðurstöðu að áverkar sem finna mátti á fuglinum voru þess eðlis að keyrt hafi verið á hana.
Í tilkynningu frá lögreglunni kemur fram að lögreglan vilji vegna þessa atviks árétta við ökumenn að þeir gæti að hraða ökutækja sinna og hugi þannig meðal annars að öryggi dýra við veg. Vísar hún þar meðal annars til fréttar er hún sendi á vef lögreglu þann 9. maí síðastliðinn um ástæður þess að dýr safnast gjarnan við vegi landsins á þessum árstíma. Þörf lesning og brýn með vísan til þess sem í gær gerðist. (Sjá hér: Ökum varlega – gætum að dýrum á og við veg | Lögreglan (logreglan.is) )