Miðvikudagur 24. apríl, 2024
7.1 C
Reykjavik

Allt að 1% landsmanna með COVID-19 kóronaveiruna samkvæmt skimun ÍE

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Fyrstu niður­stöður skimunar Íslenskr­ar erfðagrein­ing­ar fyr­ir COVID-19 kór­óna­veirunni benda til þess að um eitt pró­sent lands­manna séu með veiruna. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir greindi frá niðurstöðunum í Silfrinu á RÚV í dag.

Eitt 1% þjóðarinnar jafngildir um 3.600 manns.

Þórólf­ur sagði að tilgangurinn með sýna­töku ÍE væri að sjá hversu mik­il út­breiðsla veirunn­ar er í sam­fé­lag­inu al­mennt, en fram að þessu hafa sýni aðallega verið tekin úr fólki sem hef­ur ferðast um áhættu­svæði og þeir einstaklingar því líklegri til að bera veiruna. Þannig hafa um 10% þeirra ein­stak­linga sem áður höfðu farið í skimun reynst bera veiruna.

„Við höfum lokað fólk af sem er veikt. Við höfum fundið þá sem hafa hugsanlega smitast og lokað þá líka af. Við vitum að þær aðgerðir okkar hafa skilað árangri. Um það bil helmingur þeirra sem hafa greinst hér hafa verið í sóttkví og veikst. Þannig að við vitum að þessar aðgerðir hafa komið í veg fyrir mjög mörg smit í samfélaginu,“ segir Þórólfur og segir þær aðferðir sem beitt hefur verið hér á landi hafa hægt á útbreiðslu veirunnar.

„Þannig að þetta sýnir það að veiran er held ég ekki útbreidd hér í samfélaginu og það er gott. Það er ákkurat það sem við vildum sjá og við viljum halda því þannig. Við viljum að þetta verði mjög hægur faraldur í samfélaginu þannig að heilbrigðiskerfið og aðrir ráði vel við þetta.“

Þórólf­ur sagði nauðsyn­legt að skoða niðurstöður ÍE betur. Einstaklingar sem hafa tekið prófið eiga eftir að fá sínar niðurstöður, en þeir munu geta nálgast þær á heimasíðunni heilsuvera.is.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -