Lilja Rafney Magnúsdóttir, fyrrverandi þingmaður Vinstri grænna, gagnrýnir harðlega Svandísi Svavarsdóttur, matvælaráðherra, í stöðufærslu á fésbókarsíðu sinni. Ráðherrann hefur gefið út áætlun um endurupptöku svæðaskiptingar á kvóta strandveiðanna.
Þá skrifar Lilja: Í stað þess að tryggja nægar aflaheimildir í Strandveiðikerfið í 48 daga á öllu landinu kýs ráðherra að brjóta niður núverandi kerfi sem mikil þverpólitísk vinna var lögð í og markmiðið var að tryggja aflaheimildir í þessar umhverfisvænu og sjálfbæru veiðar sem efla sjávarbyggðir landsins !
Lilju spyr sig hvort hún eigi samleið með flokknum: Ég er hugsi yfir því hvort ég eigi samleið með Vinstri grænum lengur þegar svo illa ígrundaðar ákvarðanir eru gerðar án samráðs þvert á stefnu VG um að efla Strandveiðar !