Sunnudagur 19. maí, 2024
4.8 C
Reykjavik

„Allt mitt líf er búið að vera marinerað í alkóhólisma og fíknisjúkdómum“ – segir Páll Óskar

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Þegar fíkillinn segir ókei, now I’ve done it. Nú veit ég ekki hvort ég verð á lífi á morgun, ég er orðin hrædd eða hræddur og þarf hjálp,“ segir Páll Óskar Hjálmtýsson í þættinu Hvunndagshetjur á RÚV um eldri bróður sinn sem glímdi við fíkn og opnaði sjálfur áfangaheimili.

„Þetta augnablik þegar fíkill réttir út hendina og biður um hjálp er örugglega eitt mikilvægasta og magnaðasta móment í lífi hvers fíkils.“

Eldri bróðir hans, Arnar Gunnar Hjálmtýsson, glímdi við fíkn og opnaði sjálfur áfangaheimili til að aðstoða aðra fíkla í að ná bata.

Páll Óskar sem er einn dáðasti söngvari Íslands hefur glatt landann með sinni ómfögru rödd í gegnum tíðina. Hann er þó ekki einungis þekktur fyrir tónlistina heldur hefur hann staðið mannréttindavaktina síðustu áratugi. Hann hefur farið fram í baráttu samkynhneigðra fyrir bættum hag og rétti og deilt átaklegri sögu sinni frá því þegar hann var lagður í einelti.

Þurfti að þola einelti í báðum skólunum

Páll Óskar sagði frá sögu sinni fyrir nokkrum árum, en þar segir að hann hafi setið einn í sjö ár í grunn­skóla og þurfti að þola einelti í báðum þeim skól­um sem hann gekk í, Vest­ur­bæj­ar­skóla og Haga­skóla. Það var því ekki að ástæðulausu að hann valdi að fara í MH í stað MR líkt og flest­ir hinir í bekkn­um. Hann var bú­inn að fá nóg.

Hann segir að þetta hafi allt byrjað að því að hafi verið lé­leg­ur í fót­bolta í leik­fim­i­tíma. Það þýddi það að dreng­ur sem hafði verið hans besti vin­ur inn­an skól­ans sem utan, flutti sig frá hon­um og myndaði fjög­urra stráka klíku sem stjórnaði lífi Páls Óskars og fleiri bekkj­ar­fé­laga næstu sjö árin.

- Auglýsing -

Því Páll Óskar hef­ur fundið að hann var ekki einn þrátt fyr­ir að hafa liðið þannig á meðan einelt­inu stóð. Hann seg­ir að þegar bekk­ur­inn hitt­ist fyr­ir nokkru síðan hafi komið í ljós að fjöl­marg­ir höfðu svipaða sögu að segja. „Ég var svo hepp­inn að vera hvorki dig­ur né rauðhærður,“ seg­ir Páll Óskar. Hann þakk­ar sín­um sæla að hafa al­ist upp fyr­ir tíma snjall­tækj­anna og tóku fleiri í sama streng á fundi á veg­um sam­starfs­hóps­ins Náum átt­um, sem er for­varna- og fræðslu­hóp­ur um vel­ferð barna og ung­linga, hélt árið 2015.

Ég er fæddur og uppalinn í alkóhólisma

Í þættinum sem var sýndur í gær segist Páll Óskar þekkja alkóhólisma í fjölskyldunni og nærumhverfi sínum mjög vel.

„Ég er fæddur og uppalinn í alkóhólisma. Allt mitt líf er búið að vera marinerað í alkóhólisma og fíknisjúkdómum,“ segir hann.

- Auglýsing -

„Næstum því allt það fólk sem ég þekki og umgengst er að díla við einhvers konar fíknir að einhverju leyti, þannig að mér finnst venjulegt fólk sem þarf ekki að díla við nein verkefni í lífinu alveg hundleiðinlegt, ekkert spennó.“

Leita sér ekki hjálpar fyrr en þeir eru komnir á botninn

Páll segir að sjúklingar byrji oftast ekki að leita sér hjálpar fyrr en þeir séu komnir á botninn og það sé lítið fyrir aðstandendur að gera annað en að bíða eftir þeim degi þegar botninum sé náð. „Þegar fíkillinn segir ókei, now I’ve done it. Nú veit ég ekki hvort ég verð á lífi á morgun, ég er orðin hrædd eða hræddur og þarf hjálp,“ segir Páll Óskar. „Þetta augnablik þegar fíkill réttir út hendina og biður um hjálp er örugglega eitt mikilvægasta og magnaðasta móment í lífi hvers fíkils.“

Var sagt að ég þyrfti að breyta um lífsstíl

Arnar man eftir því þegar hann fann sinn botn. Um árabil vandi hann sig á það að fara alltaf á barinn eftir vinnu að hitta félagana og horfa á fótboltann þegar hann var í gangi. Árið 2007 fór lífernið að taka sinn toll. „Ég fór að finna fyrir brjóstsviða og þá voru komnar þrengingar í ósæðarnar. Svo fór ég í hjartaaðgerð og læknarnir sögðu á Landsspítalanum að ég þyrfti að breyta um lífsstíl.“

Arnar Gunnar Hjálmtýsson opnaði áfangaheimili eftir að hafa kynnst því í gegnum son sinn hversu mikill skortur er á úrræðum fyrir fólk sem langar að komast út í lífið á ný eftir að hafa villst út af beinu brautinni. Páll Óskar Hjálmtýsson, bróðir Arnars, segir að bróðir sinn hafi lyft grettistaki í þessum málaflokki.

Síðan hefur hann gert allt sem í hans valdi stendur til að aðstoða fíkla. „Það er alveg frábært að sjá ungt fólk sem er bara byrjað að vinna og farið út í samfélagið. Við reynum alltaf að kveikja vonina hjá fólki um að það sé betra líf í vændum.“

 

Heimildir:

Júlía Margrét Einarsdóttir, Viktoría Hermannsdóttir. „Ég er fæddur og uppalinn í alkóhólisma.“ Hér er hægt að horfa á Hvunndagshetjur í heild sinni í spilara RÚV. Framleiðandi er Skot productions.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -