Fimmtudagur 25. apríl, 2024
6.1 C
Reykjavik

Argur dyravörður grunaður um að kýla mann ítrekað í höfuðið – Meðvitundarlaus og blæddi frá höfði

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Um hálf tvö leytið í nótt barst lögreglu tilkynning um ískyggilega líkamsárás þar sem argur dyravörður á skemmtistað var undir grun um að hafa ítrekað kýlt annan mann í höfuðið. Ekki er vitað um áverka þess sem fyrir árásinni varð.

Á sjötta tímanum í gær var bifreið stöðvuð í austurhluta borgarinnar. Í bifreiðinni voru meðal annars tvö börn, annað 14 mánaða hitt fimm ára. Enginn öryggisbúnaður var fyrir börnin. Yfirgaf móðirin bifreiðina með börnum sínum og hugðist taka strætó á áfangastað.

Rétt rúmlega eitt í nótt barst lögreglu tilkynning um rafhhjólaslys. Karlmaður hafði dottið af hlaupahjólinu. Þegar sjúkrabifreið kom á vettvang var hann meðvitundarlaus og blæddi frá höfði hans. Grunur leikur á að maðurinn hafi verið undir áhrifum áfengis.

Þá var karlmaður handtekinn í Hafnarfirði grunaður um líkamsárás. Maðurinn var handtekinn og vistaður í fangageymslu lögreglu. Rannsókn málsins stendur yfir.  Ekki er vitað um áverka árásarþola.

Lögreglan hafði afskipti af tveimur mönnum framan við bílskúr í Kópavogi laust fyrir miðnætti.  Mennirnir virtust vera undir áhrifum fíkniefna og aðspurðir um fíkniefni framvísuðu þeir plastpoka með ætluðum fíkniefnum.

Töluvert var um umferðalaga- og fíkniefnabrot seinnipartinn í gær og nótt samkvæmt dagbók lögreglu á höfuðborgarsvæðinu.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -