Fimmtudagur 25. apríl, 2024
6.1 C
Reykjavik

Áslaug Arna með skýr skilaboð: „Á Íslandi líðum við ekki heimilisofbeldi“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Dómsmálaráðherra segir heimilisofbeldi ekki liðið á Íslandi.

„Kynbundið ofbeldi er mesta ógn gegn frelsi og sjálfsákvörðunarrétti kvenna sem fyrirfinnst í íslensku samfélagi. Jafnrétti kynjanna verður aldrei að veruleika á meðan það fær þrifist. Árlega leita hundruð kvenna til Kvennaathvarfsins og Stígamóta í leit að skjóli undan líkamlegu og andlegu ofbeldi á heimilum sínum. Ofbeldi á heimilum er skeinuhættast kvenfrelsinu.“ Þetta kemur fram í máli Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, dómsmálaráðherra í pistli í Morgunblaðinu í dag. Hún bætir við að þögn og afskiptaleysi séu í bandalagi með ofbeldismanninum.

Í pistlinum kemur Áslaug inn á 16 daga alþjóðlegt átak gegn kynbundnu ofbeldi, sem hófst 25. nóvember og lýkur 10. desember. „Átakinu er ætlað að opna augu sem flestra fyrir þessu vandamáli. Árangur næst ekki nema með almennri vitundarvakningu meðal þjóðarinnar og þá ekki síst meðal karlmanna. Við verðum öll að stíga fram og hafna hvers kyns áreitni og ofbeldi. Margt hefur áunnist í þessari baráttu. Sem dæmi má nefna þá mikilvægu breytingu sem gerð var á almennum hegningarlögum árið 2016 að setja sérstakt ákvæði um ofbeldi í nánum samböndum. Fyrst og fremst var það sett í þeim tilgangi að draga athyglina að alvöru heimilisofbeldis,“ skrifar hún. „Ákvæðið er rökrétt framhald af viðhorfsbreytingu sem hefur átt sér stað í samfélaginu og lýsir sér m.a. í því breytta verklagi sem lögreglan hefur tekið upp þegar hún er kölluð út vegna brota af þessu tagi.“

Bendir Áslaug á að Ísland hafi fullgilt svonefndan Istanbúlsamning fyrr á þessu ári, sem feli í sér að Ísland hefur skuldbundið sig til að fara að ákvæðum samningsins og tryggja vernd kvenna gegn ofbeldi og heimilisofbeldi í samræmi við ákvæði hans. „Skilaboðin eru skýr. Á Íslandi líðum við ekki heimilisofbeldi og áfram verður unnið að auknum úrbótum. Hafi einhvern tímann verið talið að ofbeldi fengi að þrífast inni á heimilum og að yfirvöld létu það óátalið er ljóst núna að svo er ekki.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -