Þriðjudagur 23. apríl, 2024
8.1 C
Reykjavik

Ásta Sig­ríð­ur ráðin fram­kvæmd­a­stjór­i Krón­unn­ar

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Ásta Sigríður Fjeldsted hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Krónunnar, en Ásta Sigríður hefur verið framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs frá árinu 2017. Ásta Sigríður hefur störf 1. október, eins og segir í tilkynningu, en hún tekur við starfinu af Grétu Maríu Grétarsdóttur sem óskaði eftir að láta af störfum sem framkvæmdastjóri Krónunnar í maí.

„Ég tek með mikilli tilhlökkun við starfi framkvæmdastjóra þessa stóra og mikilvæga fyrirtækis. Öflug, hagkvæm og ábyrg matvöruverslun er einn lykilþátta í hagsæld okkar og lífskjörum almennings. Krónan er þar afskaplega spennandi fyrirtæki sem hefur verið í mikilli sókn undanfarin ár. Krónan hefur á að skipa fjölda framúrskarandi starfsfólks sem hefur verið í fararbroddi á mörgum sviðum og munum við halda áfram því góða starfi, ásamt því að fást við þær miklu breytingar sem eru að verða á smásölumarkaðnum,“ segir Ásta Sigríður Fjeldsted.

Ásta Sigríður hefur verið framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs frá miðju ári 2017. Hún starfaði fram til þess hjá þremur alþjóðlegum fyrirtækjum í meira en áratug: Fyrir ráðgjafafyrirtækið McKinsey & Company frá árinu 2012, bæði á skrifstofum þess í Tókýó og Kaupmannahöfn, þar sem hún tók þátt í eða leiddi fjölda smærri og stærri greininga-, umbóta- og umbreytingaverkefna. Áður starfaði hún hjá IBM í Danmörku og stoðtækjaframleiðandanum Össuri hf., bæði í Frakklandi og á Íslandi.  Ásta Sigríður er vélaverkfræðingur með M.Sc. gráðu frá DTU, Tækniháskólanum í Danmörku.

„Það er mikill styrkur fyrir Festi að fá Ástu Sigríði til að taka að sér að leiða Krónuna og það reynslumikla starfsfólk sem þar starfar. Krónan hefur verið að gera frábæra hluti undanfarin ár og framundan eru miklar breytingar í rekstrarumhverfinu og þar kemur reynsla hennar okkur til góða,“ segir Eggert Þór Kristófersson, forstjóri Festi.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -