Arna Magnea Danks
„Við erum bara fólk eins og annað fólk“
Arna Magnea Danks
Fólk

Björk Guð­munds­dóttir er ólétt

Peningar

Samherji hyggst reka vinnu­búðir með gist­ingu

Fólk

Selja fal­lega sveita­sælu í Ölfusinu með risa­stórri lóð

Minning

Svanur Jóhann­es­son er lát­inn

Innlent

Eft­ir­lýstur í átta mán­uði á Íslandi en finnst ekki

Innlent

Kona á fimm­tugs­aldri ákærð fyrir að aug­lýsa vændi á Akureyri

Innlent

MAST varar við neyslu á skinku frá Stjörnu­grís

Pólitík

Sakar Trygg­inga­stofnun um að veita rangar upp­lýs­ingar og sýna for­dóma

Heimur

Óvenju­leg inn­rás mar­íu­bjalla vekur óhug

Pólitík

Rússar undr­andi á Þorgerði Katrínu

Jón Ásgeir og brask með Íslandsbanka: „Þúsundir heimila sátu uppi með reikning frá Jóni og félögum“

Jón Ásgeir og brask með Íslandsbanka: „Þúsundir heimila sátu uppi með reikning frá Jóni og félögum“

„Þúsundir heim­ila sátu uppi með reikn­ing­inn frá Jóni og félögum og að minnsta kosti 15.000 fjöl­skyldur misstu heim­ili sín vegna þess skaða sem hann og nokkrir aðrir ollu og þá eru enn ótaldar þær þús­undir sem rétt náðu að halda heim­ili sínu með því að gera nauða­samn­inga við bank­ann sem setti þau í klafa fátæktar og skorts,“ skrifar Ást­hildur Lóa Þórs­dóttir, alþing­is­maður Flokks fólks­ins sem er ekki sátt við kaup Jóns Ásgeirs í Íslands­banka í pistli sínum sem birt­ist í Morg­un­blað­inu í dag. Hún vísar til þess að Jón Ásgeir hafi keypt á afslætti og selt strax með hagn­aði.

Í pistl­inum fer hún stutt­lega yfir kaup Jóns Ásgeirs, hlut­deild hans í ýmsum félögum hér­lendis og furðar sig á því hvernig sagan geti end­ur­tekið sig, þegar það er ekki nema rúmur ára­tugur frá hrun­inu. „Engin skömm, engin auð­mýkt, hvað þá að hann biðji fórn­ar­lömb sín afsök­unar,“ segir Ást­hildur.

Pistill­inn hljóðar svo:

„ÉG á þetta, ÉG má þetta, ÉG get þetta.

Í gær bár­ust fréttir af því að fjár­fest­inga­fé­lagið SKEL hefði selt hlut­inn sem félagið keypti í Íslands­banka fyrir mán­uði síðan og keypt 2,5% hlut í VÍS fyrir 800 millj­ónir króna. Að ein­hverjum hluta fengu þeir sem seldu bréfin í VÍS greitt með bréfum fjár­fest­inga­fé­lags­ins í Íslands­banka.

Fyrir þá sem ekki vita þá heitir stjórn­ar­for­maður SKEL Jón Ásgeir Jóhann­es­son en hann fer fyrir eign­ar­halds­fé­lagi sem á yfir 50% í SKEL.

Kannski muna ein­hverjir eftir því að fyrir nokkrum árum átti Jón Ásgeir ráð­andi hlut í þessum sama banka. Sá banki, ásamt nokkrum öðrum, tók eft­ir­minni­lega koll­steypu eftir glæfra­legan banka­rekstur Jóns og félaga hans. Jón gerði sér lítið fyrir og stakk af úr landi með feng­inn, og skildi heilt þjóð­fé­lag eftir í sárum.

Litlar heimtur voru frá honum og félögum hans upp í þann skaða sem þeir höfðu valdið, en hitt er ljóst að ekki hafa þeir liðið skort síðan og komið ár sinni ágæt­lega fyrir borð á ný, eins og fréttir síð­ustu vikna og dags­ins í dag bera með sér.

Það sama verður ekki sagt um þá sem sátu í illa þefj­andi súp­unni sem Jón og félagar hans í hinum bönk­unum skildu eftir.

Þúsundir heim­ila sátu uppi með reikn­ing­inn frá Jóni og félögum og að minnsta kosti 15.000 fjöl­skyldur misstu heim­ili sín vegna þess skaða sem hann og nokkrir aðrir ollu og þá eru enn ótaldar þær þús­undir sem rétt náðu að halda heim­ili sínu með því að gera nauða­samn­inga við bank­ann sem setti þau í klafa fátæktar og skorts.

En „Jón er kom­inn heim“ eins og segir í gömlu dæg­ur­lagi og hann er kom­inn með stæl.

Ekki til að biðj­ast afsök­unar á mis­gjörðum sínum og skað­anum sem hann olli. Nei, hann er kom­inn til að taka meira. Hann er kom­inn til baka með pen­ing­ana sem hann, með beinum eða óbeinum hætti, fékk úr bank­anum til að kaupa hann aftur.

Jón Ásgeir ætlar sér stóra hluti og slær um leið blautri tusku fast í and­lit fórn­ar­lamba sinna.

Gríð­ar­legur hagn­aður Íslands­banka á und­an­förnum árum byggir á lífs­starfi þeirra sem var fórnað til að bæta skað­ann sem Jón Ásgeir olli.

Jón Ásgeir keypti banka, setti hann á haus­inn, skeytti engu um afleið­ing­arnar, kom aftur, keypti bank­ann, seldi bank­ann og keypti trygg­inga­fé­lag fyrir bréfin í þessum banka.

Geri aðrir betur.

Engin skömm, engin auð­mýkt, hvað þá að hann biðji fórn­ar­lömb sín afsök­unar.

Bara hroki, ÉG á þetta, ÉG má þetta, ÉG get þetta.

Höfundur er þing­maður Flokks fólks­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Er Sabrina Pasterski næsti Einstein?

Eftir að hafa smíðað flugvél á unglingsárum rannsakar Sabrina Pasterski nú svarthol, þyngdarafl og eðli rúmtímans.
Innlent

Maður játar að hafa brotið rúður í nærri þrjá­tíu bílum á Sel­tjarn­ar­nesi

Innlent

Erfða­rann­sóknir á Íslend­ingum lyk­il­at­riði í þróun nýs megr­un­ar­lyfs

Innlent

Eyjan sem átti að hverfa árið 2020 stendur enn upp úr sjó

Pólitík

„Það var stór­kost­legt að vakna í morgun“

Innlent

Innlent

Umboðs­maður Alþingis krefur Útlend­inga­stofnun svara

Fjölmargar kvartanir vegna tafa á afgreiðslu umsókna hafa borist umboðsmanni, sem vill skýringar á biðtíma.
Innlent

Drífa segir frjálst val í vændi oft vera blekk­ingu

Innlent

Lög­reglan gerði mis­tök en íslenska ríkið sleppur við bætur

Innlent

Nú er hægt að spjalla við lög­regl­una á net­inu

Innlent

Egill segir íslenska fjöl­miðla fasta í einni mestu fréttagúrku síð­ari ára

Innlent

Fíkni­efna­bóndi í Reykja­vík dæmdur í fang­elsi