Arna Magnea Danks
„Við erum bara fólk eins og annað fólk“
Arna Magnea Danks
Fólk

Björk Guð­munds­dóttir er ólétt

Peningar

Samherji hyggst reka vinnu­búðir með gist­ingu

Fólk

Selja fal­lega sveita­sælu í Ölfusinu með risa­stórri lóð

Minning

Svanur Jóhann­es­son er lát­inn

Innlent

Eft­ir­lýstur í átta mán­uði á Íslandi en finnst ekki

Innlent

Kona á fimm­tugs­aldri ákærð fyrir að aug­lýsa vændi á Akureyri

Innlent

MAST varar við neyslu á skinku frá Stjörnu­grís

Pólitík

Sakar Trygg­inga­stofnun um að veita rangar upp­lýs­ingar og sýna for­dóma

Heimur

Óvenju­leg inn­rás mar­íu­bjalla vekur óhug

Pólitík

Rússar undr­andi á Þorgerði Katrínu

Atvinnuauglýsing Eflingar birt: „Nú stendur til að reka út úr húsi erlenda starfsfólkið okkar“

Atvinnuauglýsing Eflingar birt: „Nú stendur til að reka út úr húsi erlenda starfsfólkið okkar“

Atvinnu­aug­lýs­ing frá Eflingu birt­ist í Frétta­blað­inu í morgun. Um er að ræða þau störf sem starfs­fólkið sem var sagt upp í vik­unni gegndi, með nokkrum breyt­ingum. Meðal hæfn­iskrafa er íslensku­kunn­átta og hafa sum störf á skrif­stof­unni verið lögð niður.

Um er að ræða heil­síðu­aug­lýs­ingu á for­síðu atvinnu­aug­lýs­inga Frétta­blaðs­ins. Efst í aug­lýs­ing­unni er spurt stórum stöfum: „Vilt þú taka þátt í að byggja upp metn­að­ar­fyllsta stétt­ar­fé­lag lands­ins?“

Gabríel Benjamín, kjara­mála­full­trúi hjá Eflingu og trún­að­ar­maður þeirra tíu starfs­manna skrif­stof­unnar sem eru í VR, segir í sam­tali við RÚV að það hafi ekki verið fyrr en í dag, þegar atvinnu­aug­lýs­ingin birt­ist, að margt starfs­fólk skrif­stofu Eflingar hafi kom­ist að því að störf þeirra væru ekki lengur til.

Starfs­fólkið hafi á sama tíma kom­ist að því að allt í einu væri íslensku­kunn­átta orðin skil­yrði fyrir mörg þau störf sem krefj­ist hennar ekki.

„Í Eflingu býr mik­ill mannauður og fjöl­breytni hefur verið styrkur okkar. En nú stendur til að útrýma henni og reka út úr húsi erlenda starfs­fólkið okkar sem hefur byggt upp starfið og stutt við erlendu félags­menn okkar hvað best. Mér finnst þetta til hábor­innar skammar,“ segir Gabríel Benjamín í sam­tali við RÚV.

Hann seg­ist eiga von á því að margir leiti ráða hjá VR eftir páska.

Ragnar Þór Ing­ólfs­son hefur verið gagn­rýndur tölu­vert síð­ustu daga fyrir að taka ekki skýra afstöðu í mál­inu. Enda séu, eins og áður sagði, um tíu starfs­menn af þeim sem sagt var upp, í VR.

Í sam­tali við frétta­stofu RÚV í gær sagð­ist Ragnar Þór ekki hafa átt von á hóp­upp­sögn­inni. „Það hafa nátt­úru­lega verið gríð­ar­leg átök í kringum félagið sem end­aði með risa­stóru upp­gjöri í síð­ustu kosn­ingum til for­manns og stjórnar. Maður bjóst alveg við því að það yrðu breyt­ingar og eitt­hvað í kjöl­farið sem myndi ger­ast, en ég átti ekki alveg von á þessu.“

Ragnar Þór sagði stjórn VR hingað til hafa ekki viljað íhlut­ast í þær deilur og átök sem hafa verið á skrif­stofu Eflingar.

„Það hefur nátt­úru­lega verið þrýst­ingur á mig og félagið að vera með yfir­lýs­ingar sem aftur hefur verið mjög erfitt vegna þess að við erum í mjög við­kvæmri stöðu gagn­vart þeim félags­mönnum sem við erum að verja hags­muni fyrir.“

Ragnar sagði það stjórn­ar­innar að taka ákvörðun um það hvort til stæði að bland­ast meira inn í mál­efni Eflingar eða stétt­ar­fé­lags­ins. Það yrði tekið fyrir á stjórn­ar­fundi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Er Sabrina Pasterski næsti Einstein?

Eftir að hafa smíðað flugvél á unglingsárum rannsakar Sabrina Pasterski nú svarthol, þyngdarafl og eðli rúmtímans.
Innlent

Maður játar að hafa brotið rúður í nærri þrjá­tíu bílum á Sel­tjarn­ar­nesi

Innlent

Erfða­rann­sóknir á Íslend­ingum lyk­il­at­riði í þróun nýs megr­un­ar­lyfs

Innlent

Eyjan sem átti að hverfa árið 2020 stendur enn upp úr sjó

Pólitík

„Það var stór­kost­legt að vakna í morgun“

Innlent

Innlent

Umboðs­maður Alþingis krefur Útlend­inga­stofnun svara

Fjölmargar kvartanir vegna tafa á afgreiðslu umsókna hafa borist umboðsmanni, sem vill skýringar á biðtíma.
Innlent

Drífa segir frjálst val í vændi oft vera blekk­ingu

Innlent

Lög­reglan gerði mis­tök en íslenska ríkið sleppur við bætur

Innlent

Nú er hægt að spjalla við lög­regl­una á net­inu

Innlent

Egill segir íslenska fjöl­miðla fasta í einni mestu fréttagúrku síð­ari ára

Innlent

Fíkni­efna­bóndi í Reykja­vík dæmdur í fang­elsi