Fimmtudagur 28. mars, 2024
-2.2 C
Reykjavik

BÍ segir áform Íslandsbanka illa ígrunduð: „Ömurlegt að upplifa það að fyrirtæki í eigu almennings hagi sér með þessum hætti“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Blaðamannafélag Íslands hefur sent frá sér ályktun sem samþykkt var á fundi stjórnar félagsins fyrr í dag. Í ályktuninni er fjallað um fyrirætlanir Íslandsbanka um að hætta viðskipt­um við þá fjöl­miðla sem ekki stand­ist til­tek­in skil­yrði um kynja­hlut­föll í fjölmiðlum hvað þáttagerðarmenn og viðmælendur varðar.

 

Í ályktuninni segir að áform Íslandsbanka séu „illa ígrunduð“. Þar segir einnig að það sé ekkert nýtt að fjársterkir og valdamiklir aðilar í landinu reyni að hlutast til um umfjöllunarefni fjölmiðla og hafa þannig áhrif

Ályktun BÍ má lesa í heild sinni hér fyrir neðan og á vef BÍ.

Fráleit aðför Íslandsbanka að ritstjórnarlegu sjálfstæði fjölmiðla þjónar ekki hagsmunum jafnréttisbaráttunnar og það verður að gera þær kröfur til banka í eigu almennings og þá sem stýra þar málum í umboði hans að þeir vandi betur til verka.  Mun bankinn ekki auglýsa í Vikunni vegna viðvarandi  kynjahalla á ritstjórn og í hópi viðmælenda?  Mun bankinn ekki auglýsa í Fiskifréttum vegna viðvarandi kynjahalla á ritstjórn og í hópi viðmælenda?  Það var raunar Vikan sem setti á dagskrá mögulegt mansal í íslensku samfélagi og viðkomandi blaðamaður mátti skjóta máli sínu til Mannréttindadómstólsins til að fá réttingu mála sinna og tímaritið Ísafold mátti þola það að önnur af tveimur stærstu smásölukeðjum landsins neitað að dreifa blaðinu vegna umfjöllunar um nektardansstaði og þá starfsemi sem þar færi fram!

Það er því ekki nýtt að fjársterkir og valdamiklir aðilar í landinu reyni að hlutast til um umfjöllunarefni fjölmiðla og hafa áhrif á þau, en ömurlegt að upplifa það að fyrirtæki í eigu almennings hagi sér með þessum hætti.  Allar slíkar tilraunir eru í andstöðu við alþjóðlegar skuldbindingar um frelsi fjölmiðla.

….en ömurlegt að upplifa það að fyrirtæki í eigu almennings hagi sér með þessum hætti. 

Ritstjórnarlegt sjálfstæði fjölmiðla og fjölmiðlamanna er algjört grundvallaratriði í lýðræðislegri umræðu nútímans.  Annars er hættan sú að samfélagið sé ekki endurspeglað með hlutlægum hætti og þar með bíður traustið hnekki sem er grundvöllur lýðræðislns. Þessa vegna mun Blaðamannafélag Íslands ávallt berjast gegn hvers kyns tilraunum til að hafa áhrif á ritstjórnarlegt sjálfstæði fjölmiðla, hvort sem þar á í hlut Fjölmiðlanefnd, eigendur eða auglýsendur.  Fjölmiðlar og fjölmiðlamenn hafa verið aflvaki breytinga í íslensku samfélagi og átt stóran þátt í þeim framförum sem íslenskt samfélag hefur sannarlega tekið á undanförnum áratugum.  Það voru íslenskir blaðamenn og fjölmiðlar þeirra sem settu samkynhneigð á dagskrá í íslensku samfélagi, misnotkun barna, heimilisofbeldi og ástandið á uppeldisheimilum á árum áður, svo fáein dæmi séu tekin.  Og það má halda því fram með rökum að frekar halli á aldur og stétt í umfjöllun íslenskra fjölmiðla en kyn.

- Auglýsing -

Nú verður því ekki trúað að umfjöllun fjölmiðla í gegnum tíðina um launakjör og sjálftöku forsvarsmanna bankakerfisins, sem hagar sér eins og ríki í ríkinu, nýjasta dæmið verandi ríflegur endurmenntunarstyrkur í Seðlabankanum, sem bankinn móaðist við í tæpt ár að veita upplýsingar um, valdi þessari einkennilegu ákvarðanatöku, en sporin hræða.  Hugmyndir Íslandsbanka í þessum efnum eru greinilega illa ígrundaðar og hljóta að verða lagðar til hliðar.  Bankinn getur lagt jafnrétti lið með mörgum öðrum hætti.

Reykjavík 25. október 2019.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -