Fimmtudagur 12. desember, 2024
4.8 C
Reykjavik

Bílastæði Bláa lónsins hrauninu að bráð: „Ómögu­legt að segja til um tjónið“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Um 350 bílastæði Bláa lónsins eru komin undir hraun eftir að eldgos hófst í gærkvöldi en varnargarður verndar lónið sjálft og aðrar byggingar sem staðsettur vestan við Bláa lónið. Ljóst er að um tjón sé að ræða fyrir fyrirtækið.

„Það er ómögu­legt að segja til um tjónið á þess­um tíma­punkti en við mun­um sjá þetta bet­ur þegar fram líða stund­ir og þá hvernig hægt verður að bregðast við. Það eru ein­hverj­ir bíla­stæðamögu­leik­ar við lónið en við þurf­um að skoða það bet­ur í fram­hald­inu,“ sagði Helga Árna­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri sölu, rekstr­ar og þjón­ustu hjá Bláa lón­inu, við mbl.is um málið.

Talið er þó ólíklegt hraunið fari yfir varnargarðinn og eyðileggi mannvirki Bláa lónsins að mati Runólfs Þórhallssonar en hann er settur sviðsstjóri almannavarna. Runólfur segir að verktakar með vinnuvélar og efni séu að vinna hratt og örugglega til að loka fyrir gat í varnargarðinum sem var haft opið til að umferð gæti farið þar í gegn.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -