Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Fólk

„En svo lenti ég í því að eignast mann“

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Fólk

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Birgitta snýr aftur í Pírata eftir kosningar: „Meira pönk, minni umbúðir“

|
|

Birgitta Jóns­dóttir, sem tilkynnti árið 2018 að hún væri hætt í Pírötum, ætlar sér að snúa aftur í grasrótar­starf flokksins eftir kosningar. Árið 2021 gekk hún í Sósíalista­flokkinn en virðist nú ætla að snúa aftur „heim“.

Í færslu sem hún skrifaði í morgun á Facebook segir hún að Píratar þurfi ekki að vera stjórtækir og útskýrir af hverju flokkurinn varð skyndi­lega vinsæll rétt eftir að hún stofnaði hann með öðru góðu fólki:

„Píratar þurfa ekki að vera stjórn­tækir

Eitt mesta böl Pírata voru skyndilegar og óútskýranlegar vinsældir flokksins þegar hann var splunkunýr og átti bara þrjá þingmenn á þingi. Flokkurinn var ekki eigin­legur stjórn­málaflokkur heldur skilgreindi hann sig sem hreyfingu eða hreinlega partý sem hafði frjóan jarðveg og hugmynda­fræði til að búa til öfluga grasrót. Markmið var að þróa hugmynda­fræði vald­eflingar almennra borgara sem gæti orðið að raun­verulegu afli í íslensku samfélagi. Öllum var heimilt að leggja fram hugmyndir í kosninga­kerfi okkar – án þess að þurfa að vera skráðir í flokkinn. Það var tekið til umræðu í tilrauna­lýðræði okkar og nokkur mál náðu þannig inn á málaskrá Alþingis. En í kjölfar vinsælda kom hávær krafa um að Píratar þyrftu að vera stjórn­tækir og búa til stefnu í öllum mála­flokkum og að helsta markmið okkar ætti að vera að komast í ráðherra­stóla. Þetta gekk meira að segja svo langt að talað var um að búa til einhverja ímynd af mér sem Birgittu blíðu, algerlega furðuleg hugmynd að gera erki­pönkara að einhverri glansmynd.“

Segir Birgitta einnig að í upphafi hafi markmiðið ekki verið að komast í ríkis­stjórn.

„Þegar Píratar leystu land­festar var markmiðið ekki að komast í ríkis­stjórn, heldur að finna leiðir til að vinna þvert á flokka óháð því hvaða stöðu við værum í. Að finna glufur í kerfinu til að gera stórar breytingar og nota skapandi hugsun til að vinna að langtíma­markmiðum. Það er alrangt að við höfum verið einhverskonar Samfylking light. Þing­flokkurinn samanstóð af þremur þing­mönnum, einn var nánast libertarian, annar var sannarlega alinn upp í Samfó en of frjáls­lyndur til að finna sig í þeim ranni. Sá þriðji var ég, sem skilgreini mig sem pragmatískan anarkista. Grasrótin innihélt allskonar fólk sem fannst það ekki eiga heima í þeim flokkum sem voru í boði, sér í lagi ungt fólk sem hafði alist upp á netinu og sá heiminn á annan hátt en hefð­bundnir flokkar.“

Birgitta gefur einnig góð ráð fyrir þá sem vilja bjóða sig fram til Alþingis:

„Besta ráð sem ég get gefið fólki sem sækir um atvinnu hjá þjóðinni og fær ráðningu er eftir­farandi: hafðu ávallt í huga að þetta er þitt fyrsta og síðasta kjör­tímabil, þá mun löngunin til að halda áfram á þingi aldrei hafa áhrif á verk þín, heldur muntu nýta tíma þinn til fullnustu, án ótta við að vera ekki þingtækur eða stjórn­tækur. Í mínum huga er hinn sanna merking þess að vera stjórn­tækur að vera alveg sama hvað fólki í öðrum flokkum finnst um mann, að vera stjórn­tækur er að vera trúverðugur í augum þeirra sem treysta þér til að gæta að hagsmunum lands og þjóðar.“

Þá telur þingkonan fyrr­verandi upp það sem henni finnst að Píratar eigi að standa fyrir:

„Meira pönk, minni umbúðir. Erindi Pírata var og ætti enn að vera að tryggja mann­réttindi í stafrænum heimi, upplýsinga­frelsi, gagnsæi, tjáninga­frelsi og aðgengi almennings að ákvarðana­töku um hluti sem varða hann með því að gefa fólki verkfæri til að upplifa raun­verulega vald­eflingu.“

Birgitta segir síðan að það hafi verið sér heiður að vinna með Pírötunum Mumma Tý og
Ölfu Eymars­dóttur sem bjóða sig fram fyrir flokkinn í Suður­kjördæmi:

„Það hefur verið mér sannur heiður að fá tækifæri til að vinna með mínum fyrrum yfirmanni í Götu­smiðjunni, erkiPíratanum honum Mumma Tý, og henni Ölfu Eymars­dóttur sem hefur unnið það þrekvirki að koma á dagskrá réttinda­baráttu smábáta­sjómanna ásamt öllu því frábæra fólki sem kennir sig við Suður­kjördæmi í aðdrag­anda þessara kosninga. Það verður spennandi að vinna aftur í grasrót flokksins eftir kosningarnar með fólkinu sem enn brennur fyrir grunn­gildum Pírata og því erindi sem flokkurinn stóð eitt sinn fyrir.“

Að lokum segir Birgitta það jákvætt að sjá Lenyu Rún „geysast fram á sviðið“ og óskar nýjum oddvitum Pírata góðs gengis um næstu helgi.

„Þótt Píratar hafi að einhverju leiti orðið að einskonar diet Samfylkingu undan­farin ár þá er mjög jákvætt að sjá nýtt fólk eins og Lenyu geysast fram á sviðið. Hún fékk yfir­gnæfandi stuðning í prófkjöri Pírata til að taka að sér forustu­hlutverk í flokknum og leiða hann aftur að grunn­gildum þeim sem allt var byggt á og með sanni aðgreindu Pírata frá öðrum flokkum. Um nokkra hríð þótti meira að segja töff að vera Pírati, í því fólst yfir­lýsing um að vilja alvöru breytingar og uppræta alda­gamlar hefða­helgar og inngróna spillingu. Það er gott markmið að stefna að og óska ég nýjum oddvitum Pírata alls hins besta og góðs gengis um næstu helgi.“

Mannlíf hafði samband við Birgittu og spurði hana hreint út, hvort hún sé snúin aftur í sinn gamla flokk. Svaraði Birgitta um hæl:
„Ég yfirgaf aldrei Pírata. Sum þeirra yfirgáfu mig en ég mun byrja af fullum krafti í grasrótar­starfi eftir kosningar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Nærmynd
Sport

Hver er Kolbeinn Sigþórsson?

Innlent

Ísak telur að ráðist hafi verið á sig vegna kynhneigðar

Heimur

Náttfata­veisla unglings­stúlkna endaði í harmleik

Heimur

„Þekktasta klámstjarna Ítalíu“ vill verða borgar­stjóri Rómar

Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Ágreiningur um þrif, ræstiþjónustu og myndavélar í sameign fór fyrir kærunefnd

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag