Fimmtudagur 25. apríl, 2024
9.8 C
Reykjavik

Björgólfur neitaði aðkomu að DV

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Þrátt fyrir að vera eini lánveitandi DV frá árinu 2017 neitaði Björgólfur Thor Björgólfsson fyrir það á opinberum vettvangi. Í gær fékkst það hins vegar staðfest með óyggjandi hætti með úrskurði Samkeppniseftirlitsins vegna samruna Torgs og Frjálsrar fjölmiðlunar sem gefið hafði út DV.

„Það er lítið um skjalfestar heimildir fyrir því sem ekki er.“

Í júní 2018 þrætti talsmaður Björgólfs Thors fyrir aðkomuna og sagði hann ekki koma þar með nokkrum hætti að fjármögnun DV. „Ekki veit ég nú hvernig ég get sent þér frekari staðfestingu á að Björgólfur Thor eða félög honum tengd séu EKKI í einhverjum tilteknum bisniss. Það er lítið um skjalfestar heimildir fyrir því sem ekki er,“ sagði Ragnhildur Sverrisdóttir, fyrrum talsmaður Björgólfs Thors í viðtali við Stundina.

Nú hefur það hins vegar verið staðfest að Novator, fjárfestingafélag Björgólfs Thors, var helsti bakhjarl Frjálsrar fjölmiðlunar frá árinu 2017 er Björn Ingi Hrafnsson hvarf úr útgáfunni og jafnframt eini lánveitandi fyrirtæksins Dalsdals, fyrirtækis Sigurðar G. Guðjónssonar lögmanns. Hann vildi ekki greina frá því haustið 2018 hver hefði veitt fyrirtækinu lán til reksturs DV.

Það hefur vakið grunsemdir að ekki er hægt að sjá neitt efni sem birtist á DV.is á nokkurra ára tímabili. Á umræddu tímabili voru margar viðkvæmar fréttir fluttar á blaðinu sem fjölluðu meðal annars um fjársterka einstaklingar í íslensku þjóðfélagi, meðal annars Björgólf Thor og Ólaf Ólafsson kaupsýslumenn. Hvarf efnisins hefur verið útskýrt sem kerfisvilla, ekki ásetningur.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -