Fimmtudagur 25. apríl, 2024
9.1 C
Reykjavik

Björn orðlaus eftir leik í íslensku deildinni: „Hvar eru allir góðu íslensku leikmennirnir?“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Björn Birgisson, samfélagsrýnir úr Grindavík, trúði varla sínum eigin augum á leik Breiðabliks og KR í körfubolta. Af þeim 10 leikmönnum sem eru inni á vellinum í einu voru ansi margir þeirra af erlendum uppruna. Raunar voru þeir svo margir að Björn spyr:

„Hvar eru allir góðu íslensku leikmennirnir?“

Máli sínu til stuðnings ákvað Björn að taka skjámynd af vefsíðu KKÍ, Körfuknattleikssambands Íslands. Við myndina segir hann:

„Breiðablik að leika við KR í Subway deildinni. Eins og sjá má eru ekki margir íslenskir piltar inni á vellinum þegar skjámyndin var tekin. Flest liðin eru með 3-5 erlenda leikmenn innanborðs og þá spyr maður: „Hvar eru allir góðu íslensku leikmennirnir?“

Þessa skjámynd birti Björn og má þar sjá erlenda leikmenn í miklum meirihluta.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -