Þriðjudagur 19. mars, 2024
-0.2 C
Reykjavik

Bláa lónið segir upp 403 starfsmönnum

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Bláa lónið tilkynnti í dag að 403 starfsmönnum verður sagt upp störfum frá og með næstu mánaðamótum. Grímur Sæmundsen forstjóri tilkynnti starfsfólki um uppsagnirnar á starfsmannafundi í dag, en stjórnendur og og starfsmenn sem ekki fá uppsögn í dag taka á sig launalækkun.

Til stendur að opna Bláa Lónið um miðjan júní, en lónið og hótel hafa verið lokuð vegna kórónuveirufaraldursins. 27. mars fengu 164 starfsmönnum uppsögn, þannig að starfsmenn sem eftir eru um 200 talsins.

Í fréttatilkynningu frá Bláa lóninu segir:

Bláa Lónið hefur gripið til aðgerða til að bregðast við miklum samdrætti og óvissu í ferðaþjónustu næstu misseri. Nú er orðið ljóst að áhrifin af COVID-19 eru miklu umfangsmeiri og langvinnari en væntingar voru um.

403 starfsmönnum verður sagt upp störfum frá og með næstu mánaðamótum, en Bláa Lónið vonast til að geta ráðið það starfsfólk sem sagt verður upp aftur til starfa þegar ytri aðstæður breytast til hins betra.  Laun þeirra starfsmanna sem ekki fá uppsögn verða skert, mest hjá forstjóra og stjórn um 30%, 25% hjá framkvæmdastjórn og minna hjá öðrum.

Þrátt fyrir mikla óvissu hefur verið ákveðið að opna allar starfsstöðvar Bláa Lónsins á ný þann 19. júní næstkomandi, eftir tæplega þriggja mánaða lokun en á því tímabili hefur fyrirtækið verið nær tekjulaust.

- Auglýsing -

Markmið þeirra aðgerða sem Bláa Lónið hefur nú gripið til er að gera fyrirtækinu kleift að komast í gegnum þá óvissutíma sem framundan eru.  Bláa Lónið, sem leiðandi fyrirtæki í íslenskri ferðaþjónustu, ætlar sér að taka þátt í viðspyrnu greinarinnar af fullum krafti þegar birta tekur að nýju.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -