Fimmtudagur 25. apríl, 2024
5.1 C
Reykjavik

Blackbox fagnar tveggja ára afmæli: Endurbættur matseðill og stórlækkað verð

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Blackbox Pizzeria opnaði dyrnar í Borgartúni 26 mánudaginn 22. janúar 2018 og fagnar því tveggja ára afmæli um þessar mundir. Frá upphafi var lögð áhersla á eldbakaðar súrdeigspizzur með áður óþekktum hráefnagæðum og spennandi og frumlegum samsetningum.

 

„Síðustu tvö ár hafa verið magnað ferðalag. Við höfum lært ótrúlega margt og erum farnir að þekkja okkar viðskiptavini mjög vel, sérstaklega þennan frábæra fastagestahóp sem okkur þykir ofboðslega vænt um”, segir Jón Gunnar Geirdal, einn stofnenda og eigenda Blackbox.

Blackbox naut frá upphafi mikilla vinsælda þeirra sem kjósa „artisan“ handgerðar pizzur og sækja í þá einstöku stemningu sem fylgir staðnum. Vorið 2019 opnaði Blackbox sinn annan stað í Háholti í Mosfellsbæ, við hlið Krónunnar.

„Í tilefni þessara tímamóta ákváðum við að betrumbæta matseðilinn, lækka verðin umtalsvert og einfalda um leið úrvalið á seðlinum. Að sama skapi höfum við sett inn frábær og fjölskylduvæn tilboð. Nú eru bara þrír verðflokkar á Blackbox, undir 2000 krónum, 2500 krónu pizzur og 2900 krónu pizzur. Svo langaði okkur að bæta um betur fyrir nágranna okkar sem koma margir hverjir daglega og nú eru allar pizzur á matseðlinum á aðeins 2000 krónur í hádeginu, alla daga vikunnar.“

Komum til móts við viðskiptavini okkar

Heilinn á bakvið Blackbox pizzurnar er Karl Viggó Vigfússon, einn stofnenda og eigenda. Viggó, eins og hann er kallaður, er einn af stóru nöfnunum í kokkaheiminum hérlendis og á að baki 12 ára reynslu í íslenska kokkalandsliðinu. Þessi konditori og bakarameistari er einn stofnenda Omnom súkkulaðigerðar og Skúbb Ísgerðar en helgar nú krafta sína því að baka bestu pizzur á landinu.

- Auglýsing -

„Áherslurnar hjá okkur hafa alltaf verið á gæði og hvert einasta hráefni er handvalið af mér sjálfum, eða sérframleitt fyrir okkur eftir okkar gæðakröfum. Parmaskinkan okkar kemur í heilum lærum og er skorin á staðnum í ítalskri skurðarvél ofan á vinsælustu pizzuna okkar, Parma Rucola, sem kostar á nýja matseðlinum okkar aðeins 2.500 krónur. Ég fullyrði að það er besta verð á sambærilegri pizzu hérlendis,“ segir Viggó, sem stendur vaktina daglega á Blackbox stöðunum.

„Að mínu mati eru tvær rokkstjörnur á Blackbox, ofninn okkar einstaki sem eldbakar pizzurnar á aðeins tveimur mínútum og súrdeigsbotninn okkar sem setur þig ekki í sófann að máltíð lokinni.“

Loksins hægt að panta Blackbox pizzu á netinu

- Auglýsing -

Ein af nýjungunum á Blackbox í tilefni af tveggja ára afmælinu er eitthvað sem viðskiptavinir hafa kallað lengi eftir, og það er að geta pantað pizzur á netinu og sótt til okkar. Nú er það hægt með einföldum og þægilegum hætti á blackboxpizza.is.

„Við hlökkum mikið til komandi tíma á Blackbox, erum þakklát okkar samstarfsfólki og viðskiptavinum og erum spenntir fyrir því að geta boðið þeim pizzurnar sem við erum svo stoltir af á nýju og mun betra verði,“ segir Jón Gunnar.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -