Þriðjudagur 23. apríl, 2024
8.1 C
Reykjavik

Brotist inn hjá Samstöðinni – Forystufólk Sósíalistaflokksins oft fengið hótanir um meiðingar

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Innbrot var framið í húsnæði Samstöðvarinnar, sem er fjölmiðill Sósíalistaflokksins, í nótt og þaðan flest öllu tækjum stolið. Þá voru kaplar eyðilagðir í innbrotinu. Dagskrá Samstöðvarinnar liggur niðri næstu daga hið minnsta.

„Svo sem allt sem við áttum var tekið og svo var annað eyðilagt,“ segir Gunnar Smári Egilsson ritstjóri Samstöðvarinnar í samtali við Samstöðina. „Þetta voru myndavélar, linsur, hljóðmixerar og annað sem við höfum safnað upp á löngum tíma. Ætli tapið séu ekki nokkrar milljónir í peningum talið. Samstöðin er rekin fyrir styrki og stuðning hlustenda í gegnum Alþýðufélagið og á enga digra sjóði að sækja í.“

Fram kemur á vef Samstöðvarinnar að ólíklegt sé að innbrotið hafi verið framið eingöngu í auðgunarskyni. Þar segir að endursölumarkaður á myndavélum og hljóðmixerum geti varla verið svo virkur að innbrotsþjófarnir fái nema brot af því sem það kostaði Samstöðina að byggja upp stúdíóið. Auk þess sem þrjótarnir stálu öllu steini léttara, eyðilögðu þeir einnig kapla og var gengið svo frá að ólíklegt sé að Samstöðin geti hafið útsendingar á næstunni, að því er segir á heimasíðu stöðvarinnar.

Ekki fyrstu skemmdarverkin

Skemmdarverkin í nótt voru ekki þau fyrstu í Vorstjörnunni, húsnæði Samstöðvarinnar, Sósíalistaflokksins og margra félagasamtaka sem þar eru til húsa. Fyrir nokkrum mánuðum voru rúður brotnar í húsinu og samkvæmt heimasíðu Samstöðvarinnar hefur forystufólk flokksins oft fengið hótanir um líkamsmeiðingar. „Það má allt eins vera að einhverjir hafi verið á ferð í nótt sem þola illa róttæka samfélagsumræðu eða gagnrýni á stjórnvöld,“ segir Gunnar Smári.

Hvað gerir Samstöðin nú? er spurt á síðu stöðvarinnar. „Við erum að melta þetta,“ segir Gunnar Smári. „Ég vildi að ég gæti sagt að við getum byrjað útsendingu strax á mánudag en ég veit bara ekki hvort við ráðum við það. Samstöðin er fátæk og á illa við þessum áföllum. Þau tæki sem voru eyðilögð eða stolið kosta hvert um sig ekki mikið, eru sum gömul og hæpið að við fáum þetta tjón bætt í gegnum tryggingar. Og ef ég þekki tryggingafélögin rétt myndi það taka okkur vikur, mánuði og ár.“

- Auglýsing -

Samstöðin er eign Alþýðufélagsins, sem er félagsskapur þeirra sem greiða einskonar áskrift að Samstöðinni, frá tvö þúsund krónum á mánuði (sjá hér: Félagaskráning Samstöðvarinnar).

„Ætli við verðum ekki að leita til þeirra sem hafa horft og hlustað á Samstöðina,“ segir Gunnar Smári. Og bendir á að þau sem vilja hjálpa til við kaup á nýjum tækjum geti lagt inn á reikning Samstöðvarinnar, bankanúmer: 1161-16-201669 Kennitala: 550891-1669

„En best væri náttúrlega að þeir sem brutust inn skili tækjunum,“ bætir Gunnar Smári við. „Við munum glöð taka við þeim og ekki taka eftir hverjir koma með þau.“

- Auglýsing -

Mannlíf náði ekki í Gunnar Smára við gerð fréttarinnar.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -