Ökumenn ættu allir að vita að viðurlög vegna umferðalagabrota á lögunum varða sektum. Sektirnar eru misháar og draga misjafnan dilk á eftir sér. Hafi ökumaður gerst sekur um umferðalagabrot má kynna sér, á heimasíðu lögreglunnar, hverjar og hversu háar sektirnar eru.
Samkvæmt lögum ber lögreglustjóra að veita sakborningi 25% afslátt af sektarfjárhæðinni vegna brota á umferðarlögum að því gefnu að ökumaðurinn gangist við og greiði sektina ásamt sakarkostnaði innan 30 daga frá dagsetningu hennar.
Punktakerfið
Fyrir hartnær þrjátíu árum var tekið upp punktakerfi vegna umferðalagabrota á Íslandi. Með því heldur ríkislögreglustjóri landsskrá um ökuferil hvers ökumanns og fjölda punkta sem þeir ku hafa hlotið. Safnist 12 punktar innan þriggja ára missir ökumaðurinn réttindi sín í þrjá mánuði.
Gefnir eru einn til fjórir punktar háð alvarleika brotsins og fyrnast þeir á þremur árum.