- Auglýsing -
Allt bendir til þess að rekja megi brunann í Drafnarslippnum í Hafnarfirði til opins elds. Þetta sýnir rannsókn tæknideildar lögreglunnar.
Að sögn lögreglunnar er ekki hægt að fullyrða um hvort íkveikju eða óviljaverk sé um að kenna.
Lögreglan hefur rætt við allmarga í tengslum við málið, en það hefur ekki orðið til þess að upplýsa um brunann. Í þeim hópi eru fjögur ungmenni sem lýst var eftir, en lögreglan vill taka það sérstaklega fram að þau eru á engan hátt talin tengjast brunanum.