Brynjar Níelsson, aðstoðarmaður dómsmálaráðherra, fór með kvíða í brjósti á árshátíð lögfræðinga og lögmanna, Lagadaginn, síðstaliðið föstudagskvöld. Vandræði hans hófust fyrir alvöru þegar leið á kvöldið og kom að þeirri stundu að Brynjari langaði til að dansa við eiginkonuna.
Brynjar segir skemmtilega frá kvöldinu í færslu á Facebook. Þar skellir hann skuldinni á Lækna-Tómas, eða skurðlækninn Tómas Guðbjartsson.
„Ég fór á dansiball með Soffíu í gærkvöldi í fyrsta sinn í langan tíma, sem var hluti af Lagadeginum svokallaða, þar sem allir gáfuðustu lögfræðingar landsins koma saman og gera sér glaðan dag. Þarna voru stjörnulögmaðurinn og Gucci og Armani lögmaðurinn, sem var með sólgleraugu í myrkrinu, og allt upp í virðulega dómara á öllum dómstigum. Ég ætlaði að draga dómsmálaráherra með mér sem hélt nu ekki. Hann væri nú kaffærður af lögfræðingum allan daginn í ráðuneytinu og ætlaði því ekki að eyða kvöldinu með slíku fólki.