Á nýjustu fésbókarfærslu Brynjar Níelssonar greinir hann frá reynslu sinni á skemmtun sem haldin var í gærkveldi sem hluti að Lagadeginum. Hafði Brynjar reynt að draga með sér vin sinn Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra en sá hafi ekki nennt: „Ég ætlaði að draga dómsmálaráherra með mér sem hélt nú ekki. Hann væri nú kaffærður af lögfræðingum allan daginn í ráðuneytinu og ætlaði því ekki að eyða kvöldinu með slíku fólki.“
Brynjar ræðir opinskátt kvíðann sem læddist að honum fyrir dansleikinn: „Ég var með nokkurn kvíða fyrir dansiballinu. Ég hafði ekki farið í sparifötin í langan tíma. Einhverra hluta vegna pössuðu fötin illa og eina bindið sem ég fann var komið með myglu. En þrátt fyrir þetta mótlæti reimdi ég á mig dansskóna og ætlaði að snúa Soffíu hægri vinstri á dansgólfinu og taka alla gömlu stælana.“
Brynjar fór eins og áður hefur komið fram í fylgd konu sinnar. Þrekleysið hafi hinsvegar gert vart við sig: „En þegar tilkom var þrekleysið algjört og ég rétt hafði af einn vangadans með harmkvælum. Ég skrifa þetta á Lækna- Tómas sem skar úr mér hluta af lunganu í lok síðasta árs.“