Fimmtudagur 12. desember, 2024
4.8 C
Reykjavik

Bubbi kveður Steina – „Líf hans var ekki auðvelt“ – Hann lifir svo lengi sem tónlist verður spiluð

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Þorsteinn Magnússon gítarleikari, yfirleitt kallaður Steini Magg, er látinn. Hann var einungis 66 ára að aldri. Steini var meðal bestu gítarleikara íslenskrar tónlistarsögu. Hann er helst þekktur fyrir gítarleik í hljómsveitunum Eik, Þeyr og Bubbi-MX21.

Bubbi Morthens skrifar minningu um fallinn félaga á Facebook. „Steini Magg er farinn, einn frumlegasti gítarleikari Íslandssögunnar. Hann spilaði oft með mér. Gítarleikurinn í Skyttan og sólóið er stórbrotin minnisvarði um færni hans og sköpunargáfu,“ skrifar Bubbi.

„Líf hans var ekki auðvelt, það var þyrnum stráð, en hann átti sín augnablik sem lifa svo lengi sem tónlist verður spiluð hér á landi. Við komum og við förum. Blessuð sé minning hans.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -