Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Dumitru neitar sök og segist hafa óttast Daníel: „Stop the car, stop the car!“

Í dag fer fram aðal­meðferð í máli ákæru­valdsins gegn Dumitro Calin. Hann er sakaður um manndráp af gáleysi og að hafa ekki komið Daníel Eiríks­syni til hjálpar með þeim afleiðingum að hann lést þann 2. apríl 2021.

Í vitna­leiðslum yfir Dumitru sagðist hann hafa átt erindi í Vindakór þennan dag til þess að selja eiturlyf. Hringt hafi verið í hann en hann ekki vitað hver það var sem hringdi; hann hafi aðeins fengið heimilis­fang.

Hann segir að fljótlega eftir að Daníel kom til hans að bílnum hafi hinn síðarnefndi sagt eitthvað á þessa leið: „Þú ert þarna frá Rúmeníu, ég man eftir þér.“

Dumitru segir Daníel hafa verið illa við sig og haft í hótunum við sig um langa hríð. Hann hafi meðal annars brotist inn á heimili hans, hótað honum og krafist peninga og eitur­lyfja.

Hann segist hafa orðið hræddur þegar Daníel þekkti hann og viljað forða sér. Hann hafi verið þess fullviss að Daníel ætlaði sér að ganga í skrokk á honum. Hann sagði jafnframt að Daníel hefði farið með aðra hönd í vasa sinn og hann hafi óttast það að hann ætlaði sér að taka upp vopn.


Sagði hann hafa ætlað að hlaupa af stað

Dumitru segir að Daníel hafi haldið með höndum í rúðu bílsins, sem var að hluta til skrúfuð niður fyrir þau viðskipti sem áttu að eiga sér stað.

„Stop the car, stop the car, sagði hann. Hann var rosalega æstur og reiður og tilfinningin var að hann vildi stoppa bílinn og berja mig. Ég vildi bara losna við hann og komast i burtu. Ég sagði nei, var hræddur og vildi fara. Ég byrjaði að gefa í og hann tók með báðum höndum um rúðuna og hélt sér í. Ég byrjaði að keyra og keyrði kannski 15 til 20 metra með hann hangandi á rúðunni. Svo losnaði hann af rúðunni og datt í jörðina.“

Dumitru segist hafa stoppað og séð Daníel á jörðinni í baksýnis­speglinum. Hann segir Daníel hafa verið að standa upp og gera sig líklegan til þess að hlaupa af stað á eftir honum aftur. Þá hafi Dumitru forðað sér af vettvangi. „Ég var bara hræddur og titrandi,“ sagði hann fyrir dómi í dag.

„Ég sá hann í speglinum og það var ekkert blóð eða neitt, og ég vissi að hann ætlaði að hlaupa á eftir bílnum.“

Sakborningur sagðist hafa farið heim til sín og beðið hræddur eftir því að Daníel kæmi að finna hann. Hann hafi sent honum skilaboð um að hann myndi ekki selja honum eiturlyf, hann þyrfti að finna einhvern annan. „Ég sagði: „Þú varst að reyna að berja mig og ræna mig, ekki greiða fyrir vöruna. Ég kem ekki meira heim til þín. Mér datt ekki í hug að það væri ekki í lagi með hann. Mér er búið að líða rosalega illa síðan ég fékk fréttirnar.“

„Ég sver við börnin mín og fjöl­skylduna að ég er að segja satt. Ég er mjög leiður yfir því sem gerðist. Er búinn að upplifa martröð,“ sagði Dumitru.

Segir nánast útilokað að hann hefði getað staðið upp

Sérfræðingur í heila- og tauga­skurð­lækningum, sem gerði aðgerð á Daníel eftir að hann kom á bráða­móttöku, bar vitni fyrir dómi í dag. Hann lýsti alvarlegum áverkum á höfði og heila Daníels. Hann sagði áverkana hafa verið afar dreifða og að blætt hafi frá fleirum en einum stað. Hann sagði að ástand sjúklings yrði yfirleitt alvarlegt í kjölfar svona áverka. Yfirleitt á fyrstu sekúndum eða mínútum.

Sækjandi spurði þá hvort líklegt væri að Daníel hefði getað staðið upp eftir að hafa hlotið áverkana. Hann sagðist ekki telja að svo gæti verið.

„Miðað við útlit áverkanna finnst mér það nánast útilokað.“

Verjandi sakbornings spurði í kjölfarið hvort sérfræðingurinn gæti útilokað það.

„Nánast. En ekki hundrað prósent. En þetta er mín skoðun með mína þekkingu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim