Föstudagur 17. maí, 2024
3.8 C
Reykjavik

Edda Falak lýsti eftir fórnarlömbum þekkts manns – Arnþór úthrópaði Kára Stefánsson og Þóru ofbauð

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Miklar sviptingar hafa verið inn stjórnar samtakanna SÁÁ eftir að Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, frambjóðandi til formannsembættis, dró framboð sitt til baka rétt rúmri klukkustund fyrir stjórnarfund þar sem aðalmálið á dagskrá var að kjósa um hvort að hún yrði næsti formaður. Þá sagði hún sig úr stjórn samtakanna ásamt yfirmanni sínum hjá Íslenskri erfðagreiningu, Kára Stefánssyni, en Þóra Kristín starfar sem upplýsingafulltrúi fyrirtækisins.

Mannlíf fjallaði um tilkynningu sem Þóra lét falla á facebook síðu sinni í dag, þar sem hún dró framboð sitt til baka.

Ljóst er að Þóra Kristín gekk að embætti formanns SÁÁ vísu enda höfðu 40 af 48 stjórnarmönnum skorað á hana að gefa kost á sér til starfsins og því aðeins formsatriði að klára kosninguna.

Arnþór sendi fyrirspurn á Þóru Kristínu sem hann sendi jafnframt á alla stjórnarmeðlimi SÁÁ 48 talsins. Mannlíf hefur þennan póst undir höndum en í honum segir:

„Sæl Þóra Kristín

Meðfylgjandi er skjáskot frá í gær 2. febrúar. Konur sem telja sig eiga um sárt að binda vegna ósæmilegrar framkomu einhvers frægðarmennis, munu líklega stíga fram og segja sögu sína. Ef marka má upplýsingarnar á myndinni gætu þolendurnir verið skjólstæðingar SÁÁ. Mér hefur verið sagt að gerandinn sé Kári Stefánsson. Getur þú staðfest við stjórn SÁÁ að svo sé ekki?

- Auglýsing -

AJ“

Rétt er að geta þess að mikilvægt er að skilja á milli daglegrar starfsemi SÁÁ, sem gengur sinn vanagang og átakanna innan stjórnarinnar. Eins og stuðningsyfirlýsingarnar við Þóru Kristínu bera með sér er stjórn SÁÁ heilt yfir afar samstíga en lítil andspyrnuhreyfing sem tengist Þórarni Tyrfingssyni, fyrrverandi yfirlækni og stjórnanda SÁÁ, hefur valdið miklum usla. Höfuð þeirrar andspyrnuhreyfingar innan stjórnarinnar eru Arnþór Jónsson, fyrrverandi formaður SÁÁ, og Björn Logi, sérfræðilæknir og sonur Þórarins.

- Auglýsing -

Ástandið innan stjórnarinnar var þegar afar viðkvæmt útaf stríði SÁÁ við Sjúkratryggingar Íslands en stofnunin hefur kært samtökin fyrir 175 milljón króna fjársvik eins og frægt er. Sá sem er á bak við málið innan Sjúkratrygginga er Ari Matthíasson, fyrrum framkvæmdastjóri SÁÁ, sem flestir stjórnarmenn telja að sé í áðurnefndri andspyrnuhreyfingu.

Starf þeirra gert tortryggilegt

Vísbendingar um hvað hefur gengið á síðustu daga  á má lesa út úr færslu Þóru Kristínar á Facebook þar sem að hún dregur framboð sitt tilbaka. Þar segir hún að hafa vitað að því fyrirfram að hálfgert stríðsástand ríkti innan samtakanna. Fljótlega eftir framboð hennar, sem varð formlegt fyrir þremur dögum, hafi þó spjótin beinst að henni.

„Nú er unnið að því leynt og ljóst að safna glóðum elds að höfði mér úr mínu einkalífi og þar er af nógu að taka enda hef ég líkt og aðrir sem hafa farið í áfengismeðferð, lent á vegg í lífinu og gert og sagt hluti sem ég er ekki stolt af. Það er sýnu alvarlegra að fyrrverandi stjórnendur SÁÁ eru líka að hlaða í bálköst á samfélagsmiðlum fyrir Kára Stefánsson yfirmann minn og náinn vin sem hefur einnig gert margt í sinni fortíð undir áhrifum áfengis sem hann hefði betur látið ógert og situr líkt og ég í aðalstjórn SÁÁ og er löngu hættur að drekka,“ skrifaði Þóra Kristín í yfirlýsingu sinni.

Sagði hún jafnframt að atlögurnar hafi ekki síst beinst gegn samstarfi hennar og Kára.

„Þá hefur einnig verið reynt að gera það tortryggilegt að ég sem starfsmaður Íslenskrar erfðagreiningar og Kári Stefánsson séum að láta til okkar taka í starfi SÁÁ vegna samstarfs við sjúkrahús samtakanna um rannsóknir,“ skrifaði frambjóðandinn.

Kornið sem fyllti mælinn

Heimildir Mannlífs herma að rógsherferð andspyrnuhreyfingarinnar gegn Þóru Kristínu hafi hafist um leið og hún tilkynnti um framboð sitt. Kornið sem fyllti mælinn hafi þó verið tölvupóstur rétt fyrir hádegi í dag þar sem Arnþór Jónsson áframsendi skjáskot af auglýsingu Eddu Falak á samfélagsmiðlum þar sem hún óskar eftir fórnarlömbum þjóðþekkts manns fyrir hönd konu sem orðið hafi fyrir vændi.

„Meðfylgjandi er skjáskot frá því í dag. Í færslunni segir frá konum sem telja sig eiga um sárt að binda vegna ósæmilegrar framkomu einhvers frægðarmennis, munu líklega stíga fram og segja sögu sína. Ef marka má upplýsingarnar á myndinni gætu þolendurnir verið skjólstæðingar SÁÁ. Mér hefur verið sagt að gerandinn sé Kári Stefánsson. Getur þú staðfest við stjórn SÁÁ að svo sé ekki?,“ skrifaði Arnþór í tölvupósti sem Mannlíf hefur undir höndum.

Skjáskot af færslu Eddu Falak sem Arnþór sendi á stjórn SÁÁ. Færslunni hefur verið eytt.

 

Í kjölfar þessa pósts hafi Þóra Kristín hugsað sinn gang og afréð að lokum, rétt fyrir fundinn þar sem kjósa átti hana til formanns, að draga framboð sitt tilbaka.

Draga sig úr stjórn vegna ofbeldishegðunar

Heimildir Mannlífs herma að það ríki mikil reiði innan stjórnar SÁÁ með framgöngu Arnþórs og andspyrnuhreyfingarinnar. Einn af 48 stjórnarmönnum SÁÁ er fjölmiðlamaðurinn Frosti Logason sem brást við tíðindunum með því að senda póst, sem Mannlíf hefur undir höndum, á alla stjórnina þar sem hann hjólar í Arnþór.

„Þóra Kristín og Kári Stefánsson hafa ákveðið að draga sig alfarið úr stjórn samtakanna vegna þeirrar ofbeldishegðunar sem Arnþór Jónsson og félagar hafa verið að sýna af sér í dag eins og á liðnum árum. Það skal tekið hér fram að Edda Falak hefur staðfest það við Arnþór að ekki sé um Kára Stefánsson að ræða í þessum orðrómi um vændiskaup sem hún var að fiska eftir á samfélagsmiðlum. Eftir stendur að ítrekað ofbeldi Arnþórs og félaga heldur áfram að eyðileggja fyrir okkar ágætu samtökum og það er miður,“ skrifar Frosti í póstinum til stjórnarmeðlima.

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -