Í gærkvöldi sendi Edda Falak frá sér færslu á samfélagsmiðlinum Twitter þar sem hún segist ætla að senda Gunnar Nelson á næsta lúser sem fær hana á heilann. Færslan birtist auk þessa í beinni útsendingu í sjónvarpsþættinum Vikan á RÚV.

Gunnar Nelson er einn fremsti bardagaíþróttamaður landsins og var hann gestur þáttarins hjá Gísla Marteini.
Á framsetningu færslurnar má skilja að Edda hóti líkamsmeiðingum á hvern þann sem hún telur vera aumingja og ásaki hana um lygar.
Ekki hefur farið varhluta af umfjöllunum um Eddu Falak sem staðið hefur undir ásökunum að hendi Frosta Logasonar vegna falskra staðhæfinga um starfsreynslu hennar.
Sendi Gunna Nelson á næsta lúser sem fær mig á heilann #vikan
— Edda Falak (@eddafalak) March 24, 2023