Föstudagur 29. mars, 2024
-2.2 C
Reykjavik

“Ég, Guðrún Katrín, er mamma Magnúsar Andra sem lést af fíknisjúkdómi„

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Á Fésbókarsíðunni, Það er Von, birtist hjartnæm færsla Guðrúnar Katrínar, sem deilir með lesendum reynslu sinni að hafa misst 19 ára gamlan son sinn 12. febrúar síðastliðinn. Magnús Andri laut í lægra haldi fyrir fíknisjúkdóm en hann ánetjaðist ópíóðum.

„Hann var aðeins 19 ára gamall og allt lífið framundan. Hann þráði ekkert heitar en að verða edrú. Síðustu dagar Magga voru ágætir, hann var á fíknigeðdeild, fór þaðan yfir að stunda fundi í 12 spora samtökum, var kominn með trúnaðarmann og ætlaði sér að byrja stunda 12 spora prógrammið af fullum krafti.“

Guðrún Katrín deilir því að Magnús hafi ekki verið talinn nógu veikur til að komast í langvarandi meðferð: „Hann var ekki nógu geðveikur fyrir fíknigeðdeild.“ Hún lýsir því hvernig hún hafi í örvæntingu reynt að koma honum að þar sem skammtímavistun á geðdeild eða Vog væri ekki nægilegur stuðningur sem var að koma úr neyslu ópíóða:

„Það þarf langa eftirmeðferð og utanumhald. Hann fann fyrir fordómum og skömm, hann var fárveikur af sínum sjúkdóm. En kom allsstaðar að lokuðum dyrum. Ef hann hefði verið með krabbamein, eða sykursýki, þá hefði hann fengið alla þá hjálp og aðstoð, en ekki með fíknisjúkdóm, sem er viðukenndur af alþjóða heilbrigðisstofnun.“

Eftir situr móðursöknuður og sár sorg. Guðrún Katrín er þess auki sár yfir máttleysi kerfisins: „Maggi minn var með stærsta hjartalag, og besta faðmlagið, hæfileikaríkur, stórgáfaður. Ég sem móðir hans skil ekki af hverju það er ekkert gert í þessum málum, fyrir þessa ungu krakka. Allt of mörg börn hafa látið lífið bara á þessu ári, og enginn talar um það.“

Guðrún Katrín neitar að þegja og lúta í lægra haldi fyrir skömminni og segir að lokun: „Eigum við sem foreldrar bara að þegja og skammast okkar fyrir að börnin okkar hafi látist af völdum fíkniefna. Nei, barnið mitt var með sjúkdóm, ég skammast mín ekki. Ég, Guðrún Katrín, er mamma Magnúsar Andra sem lést af fíknisjúkdómi þann 12. febrúar 2023.

- Auglýsing -

Hér að neðan má sjá færslu Guðrúnar í heild:

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -