Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Eigandi Ítalíu skuldar starfsfólki laun: „Ég trúi ekki að þetta sé að gerast á Íslandi“

Eigandi veitinga­staðarins Ítalía á Frakkarstíg í Reykjavík, skuldar nokkrum fyrr­verandi og núverandi starfs­mönnum laun. Einn þeirra stígur fram undir nafni og vill fá launin sín.

Salome Berelidze, frá Georgíu skrifaði færslu í gærkvöldi á Facebook-grúppuna Vinna með litlum fyrirvara en hún segir farir sínar ekki sléttar gagnvart veitinga­staðnum Ítalía, þar sem hún vann í aukavinnu, þar til nýlega.

Færslan er svohljóðandi (í íslenskri þýðingu):

„Ég ætla ekki að vera nafnlaus núna … ég birti hér öll skjáskotin sem ég hef frá fyrir­tækinu sem ég vann hjá en fékk ekki laun … þeir eru bókstaf­lega að ljúga að mér … og líka að öðru starfs­fólki, og þeir borga ekki heldur í stéttar­félagið eða skatta, veitinga­staðurinn heitir Italia. Fyrir­tækið heitir Opera Service efh… Ég trúi ekki að þetta sé að gerast á Íslandi. Þeir segja að ef við förum með þetta í stéttar­félagið, þá munu stéttar­félagið ekkert gera!!! Haldið ykkur fjarri veitinga­staðnum… Þetta er klikkun … „Í stuttu máli“: Ég er að spyrja „framkvæmdar­stjórann“ hvenær ég fái launin, hann segist ekki vita það því hann sjái ekki um launa­greiðslur, að ég eigi að spyrja endur­skoðandann um upplýsingar, hann segir mér að hann geti það ekki… þá spyr ég aftur og er beðin um að brjóta ekki á friðhelgi hans og hringja ekki í einka­númer hans: hringdi og svaraði af því að hann þekkti ekki númerið mitt, eftir að ég sagði honum hver ég væri, sagðist hann ætla að heyra í einhverjum Björgvini, eftir að ég skrifaði færslu hér undir nafnleynd og sendi skjáskot af færslunni til eigandans, lét hann mig loksins fá tölvupóst þessa Björgvins … ég sendi honum tölvupóst og hann er hissa á að ég sé að senda honum tölvupóst … hann sé ekki einu sinni löggiltur endur­skoðandi? Í alvörunni?!!!

Fékk aldrei launaseðil

Mannlíf ræddi við Salome sem stað­festir færslu sína og segist eiga inni um 130.000 krónur. „Ég byrjaði að vinna þar þegar hin nýja Italia opnaði, í lok janúar,“ segir Salome í samtali við Mannlíf, og heldur áfram. „Ég vann þar í aukavinnu en ég er í fullri vinnu á Messanum. Vegna þess að þetta var nýr veitinga­staður þá var ég ekki að ýta mikið á að fá samning og ég hef engan samning. Ég vann 2-2-3 kvöld­vaktir og um helgar frá opnun til lokunar.“

Salome segist ekki hafa fengið launa­seðil eftir fyrsta mánuðinn. „Ég hugsaði bara „ok“, en eftir mánuð númer tvö, spurði ég aftur og framkvæmdar­stjórinn sýndi mér launa­seðil frá löngu færi, á fartölvu sinni. Ég vildi taka ljósmynd af honum en hann bannaði mér það. Þetta var farið að vera verulega skrítið fannst mér. Þannig að ég sagði þeim að ég ætlaði að hætta en að ég myndi vinna þær vaktir sem var búið að úthluta mér fyrir apríl­mánuð. Ég vann þrjá rauða daga í apríl. En í byrjun maí byrjaði allt ruglið.“

Salome segir að þrír aðrir starfs­menn eigi einnig inni laun hjá fyrir­tækinu, til dæmis eigi einn inni um 350.000 krónur og annar 300.000 krónur. „En þetta snýst ekki lengur um peninga,“ segir Salome við Mannlíf og heldur áfram: „Heldur um framkomu þeirra við starfs­fólkið“. Salome vildi endilega láta það koma fram að hún sé afar þakklát fyrir þann stuðning sem fólk hafi sýnt henni á Facebook.

Tæknileg vandamál

Mannlíf ræddi við eiganda Ítalíu, Elvar Ingimarsson en hann opnaði einnig veitinga­staðinn Geitin í Garðabæ í byrjun árs. Mannlíf spurði hann hvort það sé rétt að starfs­fólk eigi inni laun hjá honum. „Já það er eitthvað,“ sagði Elvar og hélt áfram: „Það er verið að borga það í dag eða á morgun, þannig að þetta er ekki eitthvað … ég veit ekki hvað henni gekk til, þetta er auka­manneskja sem var látin fara fyrir löngu síðan og átti einhverja tíma inni.“

Mannlíf: „Mér skilst að það séu fleira starfs­fólk sem eigi inni laun.“

Elvar: „Já, þetta er lið sem er með okkur alltaf og það er búið að lenda í veseni á staðnum, tæknilega og launa­kostnaðurinn hækkaði mikið.“

Tölvu­pósts­sam­skipti Salome og Elvars.

Þegar Mannlíf spurði Elvar út í tölvupósts­samskipti milli hans og Salome frá 10 maí síðastliðnum, þar sem hann fullyrðir við hana að hún fái greitt þann dag, dæsti Elvar en svaraði svo: „Við klárum þetta. Þetta er í annað skiptið sem þetta gerist hjá okkur, að launin komi seint en það er bara eins og staðar er í dag með þetta, það er bara búið að vera rosalega rólegt og plús við lentum í þessu veseni þarna. Og launa­kostnaðurinn er svaka­legur. Ég var búinn að segja fólkinu frá þessu, vakt­stjórunum að þetta verður tough, næstu mánaðarmót, aftur, búið ykkur undir það bara. En þetta lagast nú samt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innlent

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Neytendur eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni.

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra