Þriðjudagur 23. apríl, 2024
7.1 C
Reykjavik

Einn látinn eftir Snjófljóð í Svarfaðardal – Allir fæddir árið 1988

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Einn bandarísku ferðamannana sem lentu í snjóflóði í Svarfaðardal er látinn. Hinir voru fluttir á Sjúkrahúsið á Akureyri en annar þeirra síðar á Landspítalann. Allir mennirnir eru fæddir 1988 og eru þeir vanir fjallamenn og vel búnir.

„Bandarísku ferðamennirnir sem lentu í snjóflóði í Svarfaðardal eru allir fæddir 1988. Þeir eru allir vanir fjallamenn og voru vel búnir. Allir hlutu þeir alvarlega áverka í slysinu og var einn þeirra látinn þegar að var komið. Hinir voru fluttir á Sjúkrahúsið á Akureyri og annar þeirra síðan á Landspítalann. Frekari upplýsingar um afdrif hans liggja ekki fyrir hjá lögreglu á þessu stigi.

Viðbragðsteymi Rauða krossins var kallað út og fóru nokkrir félagar þess til Dalvíkur til að líta til með þeim viðbragðsaðilum sem fyrstir komu á vettvang.

Nokkurn tíma tók að afla upplýsinga um nánustu aðstandendur þess látna í Bandaríkjunum. Er þær upplýsingar lágu fyrir í nótt var óskað eftir aðstoð hjá sendiráði Bandaríkjanna við að tilkynna aðstandendum um andlátið. Maðurinn sem lést var einhleypur og barnlaus.

Margir viðbragðsaðilar komu að þessari aðgerð og þökkum við hjá lögreglunni fyrir gott samstarf, nú sem endranær.

Hefðbundin slysarannsókn heldur áfram en ekki er hægt að segja hvenær niðurstöður hennar liggja fyrir,“ segir í tilkynningu frá lögreglunni á Norðurlandi eystra.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -