Miðvikudagur 27. mars, 2024
0.8 C
Reykjavik

Eiríkur fékk óhugnanlega tölvupóst – „Fullt af fólki hatar og eða fyrirlíta Pólverja“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Eiríkur Rögnvaldsson, fyrrverandi prófessor í íslenskri málfræði við Háskóla Íslands, deilir á Facebook nafnlausum tölvupóst sem honum barst eftir að hann kom fjallkonunni til varnar. Fjallkonan í ár var Sylwia Zajkowska en hún er af pólsku bergi brotin. Hún flutti ávarpið með hreim og fór það fyrir brjóstið á sumum.

Eiríkur var ekki þar á meðal. Þetta ræddi hann í þættinum Sprengisandur á Bylgjunni fyrr í dag. Eiríkur sagðist ánægður með ávarp Sylwíu. Hann ennfremur hvatti Íslendinga til að sýna út­lendingum sem tala ó­full­komna ís­lensku eða ís­lensku með sterkum hreim þolin­mæði.

„Við þurfum bara að gera það upp við okkur; ætlum við að auð­velda þessu fólki að ná valdi á ís­lensku og sýna því þá þolin­mæði á meðan það er að læra málið eða ætlum við að vera ó­sveigjan­leg í kröfum um ein­hverja full­komna ís­lensku, full­kominn fram­burð og full­komnar beygingar og svo fram­vegis?“ sagði Ei­ríkur meðal annars.

Þessi afstaða hans varð svo til þess að honum barst óhugnanlega bréfið. „Í morgun var talað við mig í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni í framhaldi af því sem ég skrifaði um daginn um erlendan hreim hjá fjallkonunni. Ég reikna með því að það sem ég sagði þar sé ástæðan fyrir því að ég fékk eftirfarandi nafnlausan tölvupóst áðan. Mér fannst það satt að segja frekar óþægilegt og óhugnanlegt,“ segir Eiríkur á Facebook.

Hann birtir bréfið í heild sinni en sá sem heldur á penna virðist hata Pólverja. „Fólk vill ekki þennan mikla innflutning á útlendingum og þess vegna hatar fólk að pólsk manneskja skuli vera valinn og svo bætir það ekki að hún kunni ekki íslensku. Vinstra fólk eins og þú búið í LA  LA landi. Þið hafið enga tilfinningu hvað er að gerast í hausi fólks. Hatrið mun bara vaxa og það er á ábyrgð fólks eins og þér. Að flytja fólk frá öðrum menningum í stórum stíl er hættulegt fyrir lýðræðið. Ekki málfar. Hennar vankunnátta hafði minnst um það að segja að fólk tjáir sig um þetta á neikvæðan hátt. Fullt af fólki hatar og eða fyrirlíta Pólverja,“ segir bréfskrifari.

„Maðurinn sem skaut á Pólverjann vissi að hann var að skjóta á útlending og jafnvel að hann var að skjóta á Pólverja. Kannski var fjallkonuatriðið hvötin af því. Það sem fyllti mælinn hjá honum. Bullið sem kemur oft frá álitsgjöfum í fjölmiðlum er stundum alveg einstakt. Svo ýtur þú enn meira undir þetta hatur með því að segja að það muni koma ennþá fleiri útlendingar í landið og gerir sjálfan þig augljóslega að manni sem óskar eftir fjölmenningu vegna einhverja undarlegra hvata og eða kannski eingöngu byggt á einhverri undarlegri hugmyndarfræði að við munum öll vera svo hamingjusöm sem ólíkt fólk með ólíkar hugmyndir um lífið.“

- Auglýsing -

Að lokum kvartar maðurinn yfir meintum rasisma Pólverja. „Að það sé allt í lagi að flytja inn fólk í stórum stíl sem hafa mikla fordóma gagnvart samkynhneigðum og fólki af öðrum kynþáttum. Þá er ég að tala um Múslima, Pólverja og Úkraníumenn til dæmis. Þeirra fordómar eru miklir. Talaðu við tíu Pólverja og að minnsta kosti fimm þeirra munu sýna fordóma. Talaðu við tíu trúariðkandi Múslima og að minnsta kosti fimm þeirra munu tjá hatur gagnvart Vesturlöndum og fylgni gagnvart Sharía lögum. Þið í Háskólanum sjáið heiminn í einhverri síu sem byggist ekki á staðreyndum. Frekar óskhyggju. Fræðasamfélagið er ekki gáfaðri en það. Byggir meira á hugmyndarfræði frekar en staðreyndum.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -