Fimmtudagur 28. mars, 2024
1.8 C
Reykjavik

Eldri maður berst fyrir lífi sínu á gjörgæslu vegna COVID-19 – Eiginkona hans lést á mánudag

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

75 ára karlmaður liggur mjög alvarlega veikur á gjörgæslu Landspítalans af völdum COVID-19 kórónuveirunnar og berst þar fyrir lífi sínu.

Stundin greinir frá.

Eiginkona mannsins lést á mánudag vegna veirunnar, fyrst Íslendinga. Hún var 71 árs að aldri og astmasjúklingur.

Sjá einnig: Andlát konu á Suðurlandi talið tengjast COVID-19

Ættingjar hjónanna vilja brýna fyrir öllum Íslendingum að baráttan gegn veirufaraldrinum sé dauðans alvara og nú sé ekkert annað í boði en hlíta fyrirmælum heilbrigðisyfirvalda. Ef misbrestur verði á því muni það hafa mjög alvarlegar afleiðingar.

Eiginmaðurinn hefur ekki glímt við neina sjúkdóma fram að þessu, og kíkt og gerðist hjá eiginkonu hans, hefur honum hríðversnað á stuttum tíma. Í dag var hann færður í öndunarvél á gjörgæsludeild.

- Auglýsing -

Hjónin eru frá Suðurlandi og eru fleiri úr fjölskyldu þeirra veikir af kórónaveirunni. „Það er alveg kominn tími til að þessi þjóð og þegnar hennar taki þessu alvarlega og hætti að haga sér eins og hálfvit­ar,“ skrifaði sonur hjónanna í færslu á Facebook.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -