- Auglýsing -
Eldur kviknaði í íbúðarhúsnæði í Skipholti snemma í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliðinu tók um það bil klukkustund að ráða niðurlögum eldsins. Miklar skemmdir urðu á íbúðinni og innbúi.
Samkvæmt mbl.is var einn staddur í íbúðinni og var hann fluttur á slysadeild vegna gruns um reykeitrun. Ekki er vitað um eldupptökin að svo stöddu.