Feðgarnir Ólafur Snævar Ögmundsson og Auðunn Snævar Ólafsson hafa verið á vergangi síðan Alma leigufélag henti þeim út úr íbúð þeirra á dögunum, þrátt fyrir loforð Umboðsmanns skuldara um að vanskil á leigu yrði greidd. Þeir hafa nú stofnað styrktarreikning.
Sjá einnig: Alma leigufélag lét bera áttræðan mann og hreyfihamlaðan son hans úr íbúð þeirra – Sjáðu myndböndin
Til að byrja með fluttu feðgarnir á hótel en réðu aðeins við nokkrar nætur þar enda kostaði nóttin 50.000 krónur. Þá fékk sonurinn, sem er í hjólastól, að dvelja hjá föðursystur sinni í nokkra daga. Í dag eru þeir svo á gistiheimili.
Þeir hafa nú ákveðið að stofna styrktarreikning ef einhver vildi vera svo góðviljaður að styrkja þá feðga.
Reikningsnúmer: 0123-05-003207
Kennitala: 180644-4829