Fimmtudagur 25. apríl, 2024
6.1 C
Reykjavik

Fleiri innbrot og ofbeldisbrot í júní – tilkynningum um heimilisofbeldi fjölgar

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Skráð hegningarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu voru fleiri í júní heldur en mánuðinn á undan. Tilkynningum um ofbeldisbrot, þjófnaði og innbrot fjölgaði nokkuð frá því í maí.

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bárust 129 tilkynningar um ofbeldisbrot í síðasta mánuði. Tilkynningum um heimilisofbeldi fjölgaði milli mánaða, úr 57 í maí upp í 75 tilkynningar í júní. Ef miðað er við meðalfjölda tilkynninga um heimilisofbeldi á sama tímabili síðustu þrjú ár hefur slíkum tilkynningum fjölgað um eitt prósent.

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bárust 14 tilkynningar um kynferðisbrot í júní, sem eru talsvert færri en í maí, en þá voru tilkynningarnar 24 talsins. Það sem af er ári hefur tilkynntum kynferðisbrotum á höfuðborgarsvæðinu fækkað um 26 prósent, sé miðað við meðaltal tilkynninga sem bárust á sama tímabili síðastliðin þrjú ár.

Um 13 prósent færri tilkynningar um innbrot bárust lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í júní en á sama tímabili síðustu þrjú ár. Þeim fjölgaði þó talsvert milli maí og júní, en til að mynda voru 20 tilkynnt innbrot í fyrirtæki eða stofnanir í maí, í samanburði við 60 tilkynningar í júní.

Þrjú stórfelld fíkniefnabrot voru skráð í júní. Þeim fækkaði frá því í maí.

Umferðarlagabrotum á höfuðborgarsvæðinu hefur fækkað um 17 prósent, sé miðað við meðaltal síðustu þriggja ára.

- Auglýsing -

Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir júní 2022.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -